151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

umræða um 9. dagskrármál.

[14:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta er ljúft og skylt að upplýsa um það að hann hefur átt fundi og samtöl við formenn þingflokka í síðustu viku um tilhögun mála. Varð það niðurstaðan að allir þingflokkar tilnefndu af sinni hálfu eitt forgangsmál og er umræðum um forgangsmál annarra þingflokka en þingflokks Vinstri grænna þegar lokið. Þær fóru fram í gærkvöldi, þannig að hér er þá að komast á dagskrá það forgangsmál sem þarna var sett inn í ágætu samkomulagi.

Forseti vill enn fremur upplýsa að ekki bíða mörg mál 1. umr., og hefur gengið ágætlega að koma þingmannamálum á dagskrá. Forseti vill í þriðja lagi upplýsa að ástæðan fyrir því að þetta mál er núna tekið fyrir er sú að framsögumaður málsins, hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, vill gjarnan eiga þess kost að mæla fyrir málinu, en ekki er víst að hún verði í færum til þess (ÞSÆ: Mikið lengur.)— mikið lengur. [Hlátur í þingsal.] Þannig að forseti vonar að hv. þingmenn sýni þessu öllu saman skilning og þar á meðal hv. 3. þm. Norðaust. Er þá málið fullskýrt.