almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði aðeins að svara vangaveltum hv. þm. Sigríðar Á. Andersen um þessi tvö atriði sem hún kom einna helst inn á í ræðu sinni. Svo ég byrji á undantekningunni gagnvart almanna- eða einkahagsmunum, hvað átt sé við með því, vil ég í fyrsta lagi taka fram að þar er ekki verið að tala um fyrsta ákvæðið, þar er engin undanþága, bara svo það sé á hreinu. Hvað varðar þennan aðalverknað, brot gegn kynferðislegri friðhelgi, er ekki tekið fram að það sé einhvers konar undanþága hvað varðar almanna- eða einkahagsmuni að dreifa nektarmyndum eða öðru kynferðislegu efni af fólki, það er engin undanþága í því. Þegar kemur því að komast yfir gögn frá öðrum sem varða einkamálefni þeirra, snýr ekki að kynferðislegri friðhelgi, heldur bara að verða sér úti um gögn annarra í heimildarleysi, setjum við inn þessar undanþágur einmitt til þess að vernda starfsemi fjölmiðla og til að vernda líka þolendur, eins og ég kom inn á í framsöguræðu minni, sem tala mögulega um eða birta jafnvel hluta af samskiptum við gerendur sína eða eitthvað slíkt. Það mætti líka segja að það væru einkahagsmunir gerendanna, þetta er til að jafna það út ef þolendur vilja tala um kynferðisofbeldi eða annars konar friðhelgisbrot sem þeir hafa orðið fyrir, að þeir séu ekki sóttir til saka fyrir að tjá sig um brot sem þeir hafa orðið fyrir eða að það sé a.m.k. hluti af mati dómstóla hvort svo sé eða ekki. Og hvað varðar fjölmiðla, af því að hv. þingmaður falaðist eftir einhverju dæmi, þá eru Glitnisskjölin dæmi um þetta. Lögbannið á Stundina er dæmi um þetta, þar sem farið var í hart við fjölmiðil fyrir að hafa undir höndum eða fyrir að vera grunaður um að hafa undir höndum gögn sem vörðuðu einkahagsmuni annarra eða einkamálefni annarra; lögbann var sett á fjölmiðilinn og ýmislegt annað slíkt í þeim efnum. Það er dæmi. En ég þyrfti að koma inn á hitt atriðið hjá hv. þingmanni í síðara andsvari.