151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

almenn hegningarlög.

267. mál
[14:49]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo að ég svari hv. þingmanni þá var samþykki í raun rætt í samhengi við það að breyta orðalaginu á þessari verknaðarlýsingu þannig að það kæmi fram að dreifingin væri án samþykkis viðkomandi aðila í staðinn fyrir, eins og kemur fram í frumvarpinu, að það væri gert í heimildarleysi. Út frá þeim grunni átti sér stað samtal í nefndinni hvað varðaði þetta samþykki. Það er eitthvað sem við höfum séð þróast í almennum hegningarlögum, eins og t.d. þegar kemur að nauðgunarákvæðinu; við erum búin að uppfæra það þannig að það grundvallist á að samþykki hafi ekki verið fyrir hendi, það hafi ekki legið fyrir, en ekki beinlínis að það hafi verið mótspyrna eða eitthvað slíkt. Þetta er hluti af þeirri þróun sem við sjáum í kynferðisbrotakaflanum.

Hv. þingmaður spurði út í væntingarnar sem fylgdu því að samþykkja frumvarpið eins og það er. Ég ætla ekki að spá um það hvort það leiði til frekari ákæra eða ekki. Hins vegar hefur verið mjög skýrt ákall frá brotaþolum þessara brota, sem hafa verið kölluð stafrænt kynferðisofbeldi, hrelliklám eða hefndarklám, að skýr verknaðarlýsing sé á slíkum brotum í almennum hegningarlögum, að ekki sé byggt á frekar úr sér gengnum ákvæðum almennra hegningarlaga um blygðunarsemisbrot sem hægt er að túlka á ýmsa vegu. Það er vissulega rétt að þau ákvæði hafa verið notuð til að ná utan um þessa hegðun, en það hefur leitt af sér ósamræmi í dómaframkvæmd, það hefur leitt af sér að staða brotaþola gagnvart brotamanni hefur skipt töluverðu máli um það hvers konar refsingum er beitt, hvort viðkomandi séu í nánu sambandi eða ekki, og svo hefur verið á reiki hvað telst náið samband eða ekki. Allt þetta er eitthvað sem hefur staðið í vegi fyrir því að brotamenn fái mjög skýra mynd af því hvað er refsivert í raun og veru, að þolendur viti á hverju þeir geta byggt sína kæru og að lögreglan viti hvað hún er nákvæmlega að rannsaka. (Forseti hringir.) Ég vil kannski vitna líka í Júlíu Birgisdóttur baráttukonu fyrir því að banna stafrænt kynferðisofbeldi. Það mætti henni ekki mikill (Forseti hringir.) skilningur hjá lögreglunni þegar hún kom og kærði brotið og það var að hluta til vegna þess að það vantaði þessa skýru verknaðarlýsingu og verið er að bæta úr því með þessu.