151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[16:01]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Aðeins framhald á muninum á uppsegjanlegu og tímabundnu. Segjum að gamall vinur minn hafi stundum fengið að gista í herbergi sem ég á, þegar þannig stóð á. Einn daginn kemur hann til mín í vandræðum, þarf á húsnæði að halda, og ég segi að hann geti leigt af mér herbergið þangað til ég þurfi að nota það í annað. Nú teygist talsvert úr dvölinni. Hann málar, leggur parket og kaupir húsgögn. Svo gerist það að hann fer að framleigja herbergið helgi og helgi fyrir miklu hærri upphæð en ég rukka hann um. Eftir því sem tíminn líður finnst mér stöðugt erfiðara að segja honum upp leigunni og réttmætar væntingar um lengri dvöl byggjast upp hjá honum í leiðinni.

Nú langar mig einfaldlega að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort eftir á hefði ekki verið hyggilegra fyrir okkur báða að ég gerði við hann tímabundinn samning með markaðsleigu og ásættanlegum uppsagnarfresti.