151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[16:16]
Horfa

Flm. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég kom einmitt að því í ræðu minni að ekki sé verið að leggja til aukið valdsvið og þá er eðlilegt að þau sjónarmið komi fram sem hv. þingmaður fór yfir. Ég vil þó nefna að ef við horfum til sögunnar og forsetakosninga eins og þær hafa þróast hér á landi þá hefur frambjóðendum fjölgað mjög í þeim kosningum sem gerir það að verkum að atkvæði dreifast mjög. Ljóst er að núverandi fyrirkomulag tryggir ekki að forseti sé kjörinn með meiri hluta atkvæða nema með tilteknu lágmarkshlutfalli atkvæða kosningarbærra manna. Ég minni á nefndarálit sameinaðrar stjórnarskrárnefndar Alþingis 1944 þar sem vitnað er til þess að þjóðinni hafi hingað til tekist að fylkja sér þannig um forsetaefni að atkvæði dreifist eigi úr hófi fram. Ég myndi telja að reynsla nýliðinna ára sýni okkur hins vegar að framboðum hafi heldur fjölgað. Hér er að vísu líka verið að leggja til að hækka tölu meðmælenda sem ég ímynda mér að sé breyting sem enginn leggist á móti en þó skal ég ekki fullyrða um það. Þetta er þá tilraun til að tryggja að forseti njóti meira fylgis án þess að verið sé að leggja til breytingar á valdsviði hans.