151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[16:18]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð bara að segja það hér til að byrja með að ég er afskaplega vonsvikin með að við skulum standa í þessum sporum, að sú vinna sem við höfum lagt í, auðfús og ánægð, skuli vera komin hingað í þingmannanefnd, þingmál forsætisráðherra. Annað sem mig langaði til að spyrja hæstv. forsætisráðherra um: Er það virkilega svo að hæstv. forsætisráðherra sé að segja hér að það sé eðlilegra að þingið taki ákvörðun um það hverju sinni hvert auðlindagjaldið eigi að vera frekar en stjórnarskráin sjálf, okkar grundvallarlög? Það er ekki eins og við séum að setja einhverja almenna reglu. Við erum jú að tala um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Ég ítreka það áður en ég les pistilinn hérna í næsta andsvari: Er þetta virkilega það sem hæstv. forsætisráðherra er að segja?