stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir hennar andsvar og þetta höfum við oft rætt. Ég veit að hér eru sjónarmið um fullt gjald, óháð því hver nýtingin er. Ég veit að hér eru sjónarmið um eitthvað sem heitir eðlilegt gjald, óháð tegund nýtingar. Ég hef alla tíð lagt áherslu á það, eins og ég held að hv. þingmaður þekki, að það eigi að hafa sérstök ákvæði um nýtingu í ábataskyni. Og: Já, ég tel eðlilegt að stjórnarskráin setji löggjafanum þau skýru fyrirmæli að honum beri að taka afstöðu til gjaldtöku af auðlindum. Það kann að vera að hér myndist meirihlutavilji fyrir að setja auðlindir á einhvers konar uppboð. Þá er það vilji löggjafans og ég held ekki að stjórnarskráin geti mælt fyrir um það. Það kann að vera að hér verði meiri hluti fyrir að hækka veiðigjöld. Ég held ekki að stjórnarskráin geti kveðið nákvæmlega á um það. En löggjafinn verður að taka afstöðu til þess þegar um er að ræða nýtingu í ábataskyni.