151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[17:04]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það á nú líklegast við um flest mál að menn vilji kannski ekki afgreiða þau fyrr en þeir skilja þau. En einmitt í ljósi sögunnar og í ljósi undanfarinna 12–13 ára hefði maður haldið að það væri farinn að myndast einhver skilningur á því, ekki bara hjá á einhverjum tilteknum einstaklingum heldur í samfélaginu, hvað menn vilja hafa þarna inni. Það sé tímabært að taka þá umræðu efnislega hér inni og reyna að finna lendingu fyrst, eins og þingmaðurinn kemur inn á, það tekst ekki með betri eða greinarbetri hætti í þeim nefndum og ráðum sem hafa verið að ræða þetta úti í samfélaginu, hv. þingmaður hefur átt sæti í slíkum hópum í gegnum tíðina og stjórnað a.m.k. einni slíkri nefnd. Það þarf kannski bara að taka þá umræðu hingað inn í þingið og ræða þetta og klára málið.

Í framhaldi af þessu, ef þetta auðlindaákvæði er ekki ásættanlegt, ekki nógu skýrt, ekki nógu víðfeðmt eða hvaða lýsingu við veljum á það, hvaða ákvæði myndi þá duga eða hvaða ákvæði teldi þingmaðurinn að dygði? Eða er slíkt ákvæði kannski bara algerlega óþarft að mati þingmannsins? Eða mun þingmaðurinn, eða þá eftir atvikum fulltrúar flokks hans í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, leggja fram slíkt ákvæði og reyna að ná samstöðu um það í nefndinni? Ég held að við skuldum ekki bara þjóðinni heldur líka þessari stofnun að koma okkur niður á það að reyna í eitt skipti að afgreiða slíkt mál frá þinginu.