151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[17:08]
Horfa

Flm. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og samstarfið. Ég vil segja þrennt í þessu andsvari, kannski tvær athugasemdir og ein spurning til hv. þingmanns. Í fyrsta lagi get ég engan veginn fallist á þann skilning hv. þingmanns á auðlindaákvæðinu að það sé óljóst. Ég tel einmitt að þetta auðlindaákvæði sé gott vegna þess að það er knappt. Það er mun skorinorðara en fyrri ákvæði og rúmar þar með grundvallarregluna sem stjórnarskrárákvæðið á að rúma.

Athugasemd tvö: Ég hlýt að gera athugasemd við það þegar hv. þingmaður kýs að kalla Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, prófessor við Stanford-háskóla, hvern ég þekki ekki persónulega, og aðra fræðimenn við Háskóla Íslands pólitíska samherja mína. Ég geri athugasemd við þennan málflutning af því að þarna er um að ræða fræðimenn, fólk sem starfar í akademísku umhverfi og var fengið til að vinna að máli sem ég kynnti öllum formönnum og fulltrúum flokka í upphafi ferilsins, um það hvernig við gætum nýtt aðferðir almenningssamráðs. Ég man reyndar ekki eftir miklum athugasemdum við að nýta slíkar aðferðir og þær snerust ekki um pólitík. Þær snerust um það hvernig við gætum virkjað fólk í umræðunni. Og þetta tókst bara ljómandi vel, algerlega óháð pólitískum skoðunum alls þessa fólks.

Hv. þingmaður leiddi ríkisstjórn 2013–2016 og stóð þá fyrir endurskoðun stjórnarskrárákvæða og skipaði nefnd. Ég á enn skipunarbréfið frá hv. þingmanni þar sem hann skipaði mig í nefnd þar sem við ræddum ákvæði um auðlindir í þjóðareign, umhverfis- og náttúruvernd og framsal valdheimilda. Síðar meir var fallið frá því ákvæði og þjóðaratkvæðagreiðslu. Í þriðja lagi langar mig því að spyrja, af því að hv. þingmaður notaði nú megnið af tíma sínum til að ræða ákvæði um umhverfis- og náttúruvernd: Var hann þá ósáttur við þá vinnu sem unnin var (Forseti hringir.) undir forystu hans ráðuneytis, hans skrifstofu, á þessum árum sem er í raun og veru undirstaðan (Forseti hringir.) í því ákvæði sem við ræðum núna?