151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[17:11]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra bregst til varnar fyrir félagsvísindadeild Háskóla Íslands og einhvern prófessor í útlöndum. Ég bætti því við áðan að ekki væru allir þarna endilega stuðningsmenn hæstv. ráðherra. Ástæðan fyrir því að ég nefndi þetta er sú að auðvitað var ágreiningur innan nefndarinnar um það hverjir ættu að leiða tiltekna vinnu enda óhjákvæmilegt að afstaða þeirra til mála, ég tala nú ekki um þegar þeir eru pólitískir aktívistar, geti haft þar áhrif. Þessi ágreiningur gekk svo langt að til að mynda náðist ekki samstaða um að skipa sérstakan sérfræðingahóp eins og til stóð í upphafi. Ég tel ekkert að því að nefna það í þessu samhengi. Þetta var töluvert stórt mál að mínu mati og leiddi til slíks ágreinings að ekki var hægt að skipa sérfræðingahóp. Hins vegar leitaði hæstv. ráðherra til fólks sem margt hvert er, og líklega allflest, hlutlaust og gott fræðifólk.

Varðandi vinnu stjórnarskrárnefndarinnar fyrri skipaði ég Sigurð Líndal prófessor formann þeirrar nefndar. Ég efast um að hann hefði látið frá sér mjög óljós ákvæði eða með óljósu orðalagi, a.m.k. ekki öðruvísi en að það lægi þá fyrir hvernig bæri að skilja það sem þar fór fram. Svo tóku aðrir við og unnu án efa mjög góða vinnu en sú vinna, rétt eins og sú vinna sem (Forseti hringir.) formenn hafa nú unnið, markast auðvitað af þessari sögu deilna um auðlindaákvæðið.