stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Herra forseti. Jú, ég kannast við þær tillögur og eins og gengur þegar fleiri flokkar safnast saman um tillögu þá þarf að finna einhvern samnefnara og ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður kannist við það í ríkisstjórn með Vinstri grænum. Ég veit ekki hversu mikið ég á að trúa söguskoðun hv. þingmanns. Við höfum auðvitað verið sveigjanleg þar sem við teljum okkur geta verið sveigjanleg en við skulum alveg hafa það í huga að við erum ekki að skiptast á leikaramyndum úti á skólalóð. Við erum að ræða grundvallarákvæði í stjórnarskrá þannig að við höfum talað um að við getum gert málamiðlanir á ýmsum sviðum en um sumt munum við aldrei gera málamiðlun og þar kannski helst ræði ég auðlindaákvæðið. En eins og ég sagði áðan, við erum opin fyrir að vinna með þetta umhverfisákvæði og við teljum að halda eigi sem fastast í að byggja á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs, þó að gerðar verði einhverjar breytingar vegna þess að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar vildu að það yrði gert. Og hvenær á maður að hlýða einhverjum, ef ekki svo stórum meiri hluta í þjóðaratkvæðagreiðslu?