151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[18:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér er farið að líða eins og ég og hv. þingmaður séum hvor í sinni umræðunni hérna, hvor í sínum þingsalnum, jafnvel hvor í sinni deildinni. Ég veit ekki hvað hv. þingmaður er að fara þegar hann segir að ég sé að andmæla einhverri frumvarpstillögu. Ég er að vísa í atburði síðastliðinna ára. Ég er að vísa í það fyrirkomulag sem var ákveðið hér af meiri hluta þings á árunum frá 2009 og áfram, að skapa nýjan farveg fyrir stjórnarskrárbreytingar án grundvallar í sjálfum stjórnlögunum. Auðvitað endaði það allt saman með ósköpum. Það er það sem ég er að vísa í. Ég er ekkert að andmæla aðkomu þjóðarinnar. Ég tel að það sé mjög til bóta, alveg eins og núgildandi stjórnarskrá var í upphafi borin undir þjóðina og fékkst mjög breiður stuðningur við hana sem er auðvitað grundvallaratriði. Eða eru menn kannski komnir á þá skoðun að það sé bara fínt að meiri hlutinn á hverjum tíma sé dálítið að hræra í stjórnarskránni og það skipti engu máli að ná nema kannski 52% með sér í þjóðaratkvæðagreiðslu, svo komi bara ný ríkisstjórn skömmu síðar og taki slaginn aftur? Þetta er ekki það sem ég sé fyrir mér.