stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegur forseti. Hér gengur hv. þingmaður út frá því að þegar fólk segist ætla að fara í heildarendurskoðun á stjórnarskránni ætli það sér að breyta hverju einasta ákvæði. (Gripið fram í.) Nei, segir hv. þingmaður hér fram í. Gott og vel. Ég veit ekki alveg hvað hv. þingmaður er þá að fara hér. Ég veit ekki annað en að sú vinna í stjórnarskránni sem talað var um hafi átt sér stað, að ég hafi verið þar á fundum og tekið þátt í vinnunni og hafi verið að flytja ræðu um að hæstv. forsætisráðherra hafi haldið vel utan um málið en verið töluverður vandi á höndum. Eitt af því sem gerðist í umræddri vinnu var að formaður Samfylkingarinnar gat með engu móti stutt niðurstöðuna, bara gat ekki með nokkru móti tekið þátt í að styðja endanlega niðurstöðu. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður er að reyna að draga athyglina frá því eða er að reyna að þvæla hér inn hugmyndinni um að með því að taka þátt í heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar sé fólk að skuldbinda sig til að breyta hverju einasta ákvæði, sem er auðvitað galið og stóð aldrei til. Það er það sem bókun mín gengur út á, að þó að við förum yfir alla stjórnarskrána og skoðum hvar þörf er á að breyta felur það ekki í sér (Forseti hringir.) að við ætlum að gleypa tillögur stjórnlagaráðs.