stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Herra forseti. Svo að við höldum alvörunni áfram þá er alveg ljóst að hæstv. fjármálaráðherra ætlar að styðja ákvæðið eins og það lítur út núna. Það sem truflar hann er þjóðareignarákvæðið. Ákvæðið um þjóðareign eins og það er núna breytir engu frá núgildandi lögum enda segir Lagastofnun Háskóla Íslands: Þetta ákvæði breytir engu. Hæstv. forsætisráðherra leggur enda engin frumvörp fram um hverju eigi að breyta samhliða þessu frumvarpi. Í greinargerðinni segir að þetta feli í sér að nýtingarheimildir þurfi að vera tímabundnar eða uppsegjanlegar.
Fyrst hæstv. fjármálaráðherra er svona ofsalega ánægður með ákvæðið eins og það kemur frá forsætisráðherra spyr ég: Getur hæstv. fjármálaráðherra tekið þennan passus í greinargerðinni, ef þetta á að vera raunverulegur vilji hans og forsætisráðherra, og sett hann inn í greinina sjálfa þannig að vilji löggjafans sé ótvíræður eins og hann kemur fram í greinargerðinni? Væri hæstv. fjármálaráðherra í fullri alvöru tilbúinn til að hugsa það?