151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[18:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem hv. þingmaður lét hér í skína var að hún væri sátt við ákvæðið ef í því stæði að nýtingarheimildir þyrftu að vera tímabundnar eða uppsegjanlegar. Samt sem áður hefur það verið þannig í gegnum alla vinnuna í aðdraganda framlagningar þessa frumvarps, og er sömuleiðis í breytingartillögu frumvarpsins, að orðalaginu „eða uppsegjanlegar“ er sleppt. Málið snýst um að óþarfi er að útkljá þetta í textanum sjálfum. Það er algerlega skýrt í frumvarpinu og í greinargerðinni. Það sem hv. þingmaður þarf kannski að vera aðeins skýrari um er að þörf sé fyrir að sleppa því að taka fram „eða uppsegjanlegar“. Hv. þingmaður er ekki að reyna að gera neitt annað en að knýja á um í gegnum stjórnarskrárbreytingar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu. Við skulum bara ræða þetta eins og það er. Þetta snýst um það. Þrátt fyrir að ég hafi vakið athygli á Vatneyrardómnum, þar sem Hæstiréttur hefur tekið af skarið um þetta atriði sem haldið er fram að einhver lagaleg óvissa ríki um, þá er alltaf haldið áfram að tönnlast á þessu.