151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:11]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Þjóðin er stjórnarskrárgjafinn, þannig að það sé á hreinu, og hyggst ég ekki svara neinum spurningum um það. Þannig er það bara. Hins vegar er spurning hvernig við ætlum að láta hér á Alþingi í ljósi þeirrar staðreyndar, þ.e. hvernig við ætlum að standa að stjórnarskrárbreytingum í ljósi þeirrar lagatækni sem við búum við, nefnilega gildandi stjórnarskrár og hins þinglega ferlis. Við ræðum frumvarp hæstv. forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskrá. Margt í því frumvarpi er efnislega fínt, annað ekki svo fínt og fjölmargt vantar. Það er aðaleinkenni þess, hlutir sem vantar, þrátt fyrir upprunalegar áætlanir hæstv. forsætisráðherra og þeirra sem lögðu í leiðangurinn og þeirra sem eltu.

Hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa talað svolítið mikið um ósk sína um það að við ræðum málið efnislega og að öllu jöfnu er það mjög málefnaleg ábending. Stundum festist Alþingi í því að karpa um það hvort einhver nefnd hafi hist á réttum tíma eða hvort nægur tími hafi liðið milli einhverra útgáfna eða hvað sem er og gleymir að hugsa um efnisatriði málsins þannig að það virðist í fljótu bragði rosalega málefnalegt þegar hæstv. ráðherrar tala þannig. Venjulega væri ég á þeim stað sjálfur. En formið skiptir samt máli og skiptir líka máli í öðrum tilfellum þar sem við ræðum eitthvað annað en stjórnarskrá, en sér í lagi þegar kemur að hlutverki þingsins og hlutverki almennings, kjósenda, við það að setja nýja stjórnarskrá, myndi maður halda að ferlið skipti máli.

Tökum dæmi, segjum að forsætisráðherra myndi ákveða að hann, hún eða hán hefði heimild til að setja lög án atbeina þingsins og þingið myndi mótmæla og forsætisráðherra segði: Já, við skulum ræða málið efnislega. Hvað myndi þingið segja þá? Ég held að þingið myndi segja: Nei, við ætlum ekki að ræða þetta efnislega en við ætlum að ræða hvernig þú ert að fara langt út fyrir valdsvið þitt og hvernig við eigum að hafa lýðræðið í landinu. Ég held og ég vona að það sé það sem Alþingi myndi segja og gera það sem þyrfti til að framfylgja því. En núna eigum við að ræða þetta mál efnislega þegar staðan er sú að það var í alvörunni, í raunveruleikanum sem við búum öll í og deilum, haldin þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október 2012 og niðurstöðurnar úr þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu voru skýrar. Það skiptir máli, virðulegi forseti, að við förum eftir þeirri niðurstöðu. Jafnvel þótt við getum hunsað hana lagatæknilega þá er það rangt, virðulegur forseti. Það er siðferðislega rangt að hunsa hana.

Nú er alveg rétt sem hæstv. fjármálaráðherra sagði áðan að sú þjóðaratkvæðagreiðsla snerist ekki um tiltekið frumvarp, hún var um að grundvalla nýja stjórnarskrá á frumvarpi stjórnlagaráðs. Við getum alveg gert það og málið hefur tekið breytingum og má taka breytingum og það hefur alltaf verið skýrt. Það var skýrt þegar stjórnlagaþing var kosið. Það var skýrt þegar stjórnlagaráð var skipað. Það var skýrt þegar stjórnlagaráð skilaði tillögum og það var skýrt við þinglega meðferð málsins á Alþingi 2012 og 2013. Það er enginn ágreiningur um það hér inni og við þurfum ekki að karpa um það, þess vegna leiðist mér svolítið að látið sé eins og við þurfum að karpa um það. Þetta blasir bara við.

Hitt er síðan að ef við ætlum að vera stjórnmálamenn af heilindum verðum við í það minnsta að þykjast vilja hlusta á þjóðarviljann þegar kemur að mikilvægum ákvæðum sem þjóðin er búin að fella dóm um. Það eru ekki endilega ákvæði sem okkur líkar vel við. Ég skal nefna dæmi, þjóðkirkjuákvæðið sem meiri hluti kjósenda 2012 vildi hafa í stjórnarskrá. Það var afleit ákvörðun að mínu mati, mér finnst algerlega galið að hafa þjóðkirkjuákvæði í nútímasamfélagi, en gott og vel, ég skal samt setja nafn mitt á frumvarp með slíku ákvæði, öskrandi og sparkandi að vísu, vegna þess að ég trúi því að ef ég ætla að fara að breyta því þá eigi að gera það undir öðrum formerkjum. Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár er málamiðlun. Það var alltaf málamiðlun og stjórnarskrár eru það alltaf. Það er rangt, efnislega rangt, af ráðherrum að láta eins og að hér hafi þingmenn bara viljað sinn veg og ekkert annað. Það er bara rangt. Þingmenn hafa verið fullkomlega reiðubúnir til að taka þátt í umræðum um þessi mál og hafa tekið þátt í umræðum og hafa haft frumkvæði að því að ræða þessi mál um árabil. Frumkvæðið vantar frá hæstv. fjármálaráðherra til að ræða þau mál sem hann kemur síðan í pontu og segist vilja ræða frekar en málið sem er hér til umfjöllunar. Verði honum að því. Að ákveðnu leyti tek ég undir með hæstv. ráðherra.

En gott og vel, hér er þetta frumvarp, í því er sumt fínt og annað vantar og enn annað er vont, sem ég ætla að fara hérna yfir og vona að mér endist tími til þess. En það er ansi margt að fara yfir. Eins og fólk veit væntanlega hér inni var ég á meðal hinna svokölluðu formanna, ég er reyndar ekki formaður Pírata, Píratar eru ekki með formann, en ég var fulltrúi Pírata í formannahópnum sem hefur verið hittast á kjörtímabilinu og endaði með því að hæstv. forsætisráðherra lagði fram þetta frumvarp. Ég hef lagt mig fram við að mæta og fylgjast með og vinna heimavinnuna mína og ég verð að segja að í upphafi þessa starfs hafði ég hreinskilnislega ekki mikla trú á því en vildi samt að við mættum á þessa fundi, hefðum sjónarmið okkar með í umræðunni og reyndum að passa að þessu yrði stýrt á sem skásta braut og reyndum að sjá það góða og bjarta sem þó var í tillögum hæstv. forsætisráðherra. Við lögðum strax til að við byrjuðum á breytingarákvæðinu. Við lögðum strax til að fundirnir yrðu opnir en aldrei var hlustað á okkur þegar kom að einhverju slíku. Allt í góðu, hæstv. forsætisráðherra ákvað að gera þetta og forsætisráðherra ákveður það og hefur ekki skuldbundið sig til að gera eins og við vildum. Ég vil bara benda á að við hefðum gert þetta öðruvísi og vildum gera þetta öðruvísi. Við tókum þátt í þessu þrátt fyrir að við vissum að það gæti endað allt öðruvísi en við vildum. Það er vegna þess að við erum víst, virðulegur forseti, til í samtal, víst. Við höfum sannað það núna.

En eftir þetta ferli er ég, því miður, algjörlega sannfærður um — ég hef vonandi rangt fyrir mér en mér finnst líklegt að ég hafi rétt fyrir mér — að Alþingi ræður ekki við verkefnið, sér í lagi ríkisstjórn. Ég held að ástæðan sé ekki sú að þetta tiltekna fólk hafi valist í ríkisstjórn eða að þessi tiltekni meiri hluti sé til staðar, ég held að ákveðinn pólitískur ómöguleiki sé fólginn í því að ríkisstjórn eða formenn flokka komi saman og setji sjálfum sér mörk um hvernig vald þeirra eigi að virka.

Í hruninu var hrópað „vanhæf ríkisstjórn“ og stundum hefur verið gert gys að því, þetta hljómi eins og „hundur í vanskilum“ þegar fólk meinti kannski „óhæf ríkisstjórn“ en ég held, virðulegi forseti, að hrópið hafi verið rétt. Ríkisstjórnin er vanhæf til þess að ákveða eigin valdmörk og það kristallast ofboðslega vel í þessu frumvarpi hversu djúpstæður sannleikur það er. Það er nefnilega áberandi við frumvarpið hvernig þar vantar hlutina úr frumvarpi stjórnlagaráðs og öðrum hugmyndum sem hafa komið fram, hluti til að tempra og takmarka vald ráðherranna sjálfra eða hafa aðhald og mótvægi í stjórnmálum almennt. Sem dæmi eru í þessu frumvarpi tímatakmörk á setu forseta lýðveldisins, sem er nær valdalaus með öllu, a.m.k. viljum við trúa því. Til hvers, virðulegi forseti? Af hverju þarf að passa að forseti lýðveldisins sitji ekki of lengi? Er það bara út af fyrrverandi hæstv. forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni, eða hvað? Af hverju eru ekki ráðherrar þar inni eins og í frumvarpi stjórnlagaráðs? Fyrir því er mjög augljós ástæða, virðulegi forseti: Ráðherra skrifaði þetta frumvarp og það er ekkert flóknara en það. Það er engin málefnalegri ástæða á bak við það. Þarna á bak við er engin ráðgáta eða leyndarmál sem gerir það að verri hugmynd. Það er bara vegna þess að fólkið sem stjórnar því í dag, lagatækninni samkvæmt, hver stjórnarskráin skuli vera er sama fólkið og á að lúta þeim takmörkunum sem stjórnarskráin á að setja valdi þess.

Ég er farinn að hallast að því að við neyðumst á endanum til þess, og kannski vonandi sem fyrst, að átta okkur á því að til þess að takast á við stjórnarskrármál, uppfæra stjórnarskrána okkar þannig að hún sé nútímaleg og sé stjórnarskrá Íslands, þá þurfum við einhvers konar aðskilda samkomu, stjórnlagaþing einhvers konar, sem ég hef ekki útfært endanlega í höfðinu á mér, en ég tel að það sé eina leiðin til að koma í veg fyrir þann hagsmunaárekstur sem er óhjákvæmilega fólginn í því að stjórnmálamenn ákveði sjálfir takmörk sín.

Eitt af fjölmörgu sem mér finnst vanta í frumvarpið er ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur. Nú er allur gangur á því hvaða ákvæði eða hugmyndafræði í frumvarpi stjórnlagaráðs mörgum hér inni og stuðningsfólki Pírata sem annarra finnst skipta mestu máli. Ég sem borgari, sem kjósandi, er þeirrar skoðunar að þjóðaratkvæðagreiðsluákvæði skipti mestu máli. Það er ekkert ákvæði sem mér þykir vænna um en það, ekkert ákvæði sem ég held að myndi bæta stjórnmálin meira en það og er þó af nógu að taka og vil ég undirstrika það. Það er ekki í frumvarpinu og frá sjónarhorni forsætisráðherra get ég svo sem alveg skilið málefnalegu ástæðuna fyrir því. Það var þannig að frumvarp — sem við Píratar höfum reyndar gagnrýnt mjög harðlega, og er ekki víst að við hefðum greitt atkvæði með, það er reyndar frekar ólíklegt — var sent til Feneyjanefndarinnar sem gaf álit sitt á því og allt í góðu með það. Feneyjanefndin hafði allnokkrar athugasemdir við það frumvarp, tók þar á meðal undir sumt af þeirri gagnrýni sem við höfum lagt fram, sér í lagi um höfnunarþröskuldinn, og þá sá forsætisráðherra fyrir sér að það væri of skammur tími eða erfitt einhvern veginn að reyna að breyta því og bjarga, sér í lagi með hliðsjón af niðurstöðum rökræðukönnunar sem var haldin á sínum tíma. Gott og vel, ég skil, ég er ósammála en ég skil. Ég hefði viljað setja miklu meiri pressu og miklu meiri metnað í að hafa almennilegt þjóðaratkvæðagreiðsluákvæði. Það vekur athygli mína að það er eins og ekkert sé hlustað á fólk sem vill hafa meira lýðræði þegar kemur að því, eins og það séu alltaf einhverjir draumórar, eins og það megi svo sem vera þjóðaratkvæðagreiðsluákvæði svo lengi sem það er annaðhvort aldrei notað eða virkar ekki eða er svo gallað að það er engin leið fyrir þjóðina að hafna neinu. Það er eins og Sjálfstæðisflokkurinn sé alveg til í ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur svo lengi sem þær annaðhvort eiga sér ekki stað eða skipta engu máli. En ég vil þjóðaratkvæðagreiðsluákvæði sem skiptir máli og er notað, ekki á hverjum degi en af og til. Mér þykir útfærsla frumvarps stjórnlagaráðs bara ágæt í þeim efnum fyrir utan kannski það að skýra mætti ákveðna hluti betur en ég tel það ekki óvinnandi veg. Ég held að það sé alveg hægt ef fólk vill, en fólk þarf þá að vilja það.

Annað ákvæði sem hefur mikið verið rætt hér í dag og í samfélaginu er auðlindaákvæðið og skyldi engan undra. Sú umræða endurspeglar áratugalanga baráttu fólks fyrir því að breyta hlutunum þannig að horfið sé frá ástandinu sem er í dag. Ástandið er þannig í dag að ákveðin atvinnugrein hefur fengið varanlegar veiðiheimildir í sínar hendur og jú, það er tönnlast á því að löggjafinn gæti, ef Sjálfstæðisflokknum þóknaðist, tekið þær til baka, og vísað til hæstaréttardóma því til stuðnings. Ég geri ráð fyrir að það sé satt. En, virðulegur forseti, af hverju er það þá ekki gert? Það er bara ein ástæða fyrir því, hún er deginum ljósari. Ég vona að ég fari að móðga einhvern núna í þessari ræðu, en það er vegna þess að það er hagsmunagæsla í gangi. Sjálfstæðisflokkurinn stendur vörð um einkahagsmuni. Það er ómálefnalegt og það er siðlaust, virðulegi forseti. Við eigum ekki að láta eins og það sé í lagi að stjórnmálaflokkur standi hálfopinberlega vörð um fjárhagslega hagsmuni tiltekinna aðila í samfélaginu. Það er ekki í lagi, allra síst þegar kemur að stjórnarskrá.

Til þess að breyta því þurfum við ákvæði í stjórnarskrá og ég vil nefna dæmi. Kvótasetning makríls átti sér stað nýlega og núna er til meðferðar í atvinnuveganefnd mál um að kvótasetja grásleppu. Augljóst er að því er viðhaldið að það sé fullkomlega eðlilegt að úthluta kvóta varanlega í samfélaginu en það er ekki í lagi og það á að vera grundvallaratriði að það sé ekki í lagi og það á að vera fast í stjórnarskrá að það sé ekki í lagi. Og um leið og það er rætt málefnalega þá eigum við bara að hafa þetta á hreinu, jafnvel þótt við skiljum eftir spurninguna um það hvað yrði um núverandi kvótaeign með lögfestingu þessa ákvæðis eða breytingartillagna af hálfu Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og fleiri, þetta eru tvær breytingartillögur. Það skiptir máli að við setjum einhvern takt í það í stjórnarskrá að þjóðareign þýði í það minnsta ekki varanleg afnot í höndum einkaaðila af hinni svokölluðu þjóðareign, alla vega ekki það. Það á að vera á hreinu. Mér þótti fyndið eiginlega, en hálfsorglegt, að hlýða á svar hæstv. ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Jóns Þórs Ólafssonar áðan þegar hann spurði hæstv. ráðherra beint hvað honum þætti um að hafa fyrirkomulagið þannig. Svar hæstv. fjármálaráðherra var á allan hátt þannig að jú, hann væri alveg til í að hafa einhver gjöld svo lengi sem þetta varanlega eignarhald væri enn við lýði, þ.e. alla vega meðal þeirra sem þegar hafa það.

Við höfum lagt fram, Píratar, Samfylkingin, Flokkur fólksins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson, eina breytingartillögu sem sneri að því að breyta frumvarpinu þannig að efnistextinn yrði hinn sami og í öðru frumvarpi sem við höfum lagt fram, sem er framhald af frumvarpi stjórnlagaráðs, sem sagt frumvarp grundvallað á frumvarpi stjórnlagaráðs. Hún var lögð fram áður en mælt var fyrir málinu til að hún væri með í málsmeðferðinni, yrði með í nefndinni. Það kemur vel til greina að breyta henni. Sé það gert á skýrum og málefnalegum forsendum þá er ekkert að því ef tryggt er að það nái markmiði sínu. Við höfum lagt okkur fram við að hafa efnistextann hinn sama og þar sem málið var statt eftir málsmeðferð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í framhaldsáliti hennar árið 2013. Þó vísum við í greinargerð, sem er ansi umfangsmikil, um 35. gr. frumvarps til nýrrar stjórnarskrár sem einnig er hér á Alþingi á þingskjali 26 og þar er m.a. fjallað um hið eilífa bitbein, fullt gjald eða eðlilegt, og ég ætla að fara örstutt út í það og lesa úr greinargerð frumvarpsins til að hafa það á hreinu. Í V. lið skýringa við 35. gr. segir, með leyfi forseta:

„Í samræmi við eignarréttarleg sjónarmið er því að meginreglu eðlilegt að tekið sé fullt gjald af nýtingu auðlinda í þjóðareigu.

Með fullu gjaldi er átt við markaðsverð, þ.e. hæsta gjald sem nokkur er fús að greiða, t.d. á markaði eða uppboði eða í samningum við ríkið sem umboðsmann rétts eiganda, þjóðarinnar. Sem fyrr greinir er fullt gjald meginreglan og á við í þeim tilvikum þar sem auðlindarenta myndast á annað borð. Ef auðlindanýting er á hinn bóginn með þeim hætti að ekki er um auðlindarentu til einkaaðila að ræða, svo sem vegna samfélagslegra verkefna, rannsókna eða hefðbundinnar nýtingar einstaklinga án verulegrar tekjusköpunar, getur löggjafinn kveðið á um að eðlilegt gjald sé eftir atvikum ekkert eða ákveðið með öðrum hætti en á markaði eða uppboði, svo sem með fastri gjaldskrá.“

Þar er meiri umfjöllun að finna, virðulegi forseti, sem ég ætla sleppa lesa beint en vísa til hennar. Ég las þetta upp vegna þess að ég hef tekið eftir því að í umræðunni um auðlindagjald hefur verið reynt að mála hlutina þannig upp að það sé ómögulegt að hugtökin eðlilegt gjald eða fullt gjald eigi einungis við fiskveiðiauðlindina. Ég vil ítreka að það er rangt þegar hæstv. ráðherrar segja að þetta auðlindaákvæði, eða það sem Viðreisn hefur staðið fyrir eða Samfylkingin eða við í Pírötum eða það sem er í frumvarpi stjórnlagaráðs, geri einungis ráð fyrir fiskveiðiauðlindinni. Það er einfaldlega rangt. Gert er ráð fyrir öllum auðlindum. En auðvitað er lögð höfuðáhersla á að skýrt sé hvernig farið er með fyrirferðarmestu auðlindina, auðvitað er lögð áhersla á það. Það þýðir ekki að hún varði einungis hana. Ég verð líka að segja að ég hef svolítið velt fyrir mér nákvæmlega hvað það er við þessar markaðsleiðir sem hefur farið fyrir brjóstið á Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Ég átta mig ekki alveg á því. Það eina sem ég hef heyrt var að hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nefndi það í andsvari að Vinstri græn væru almennt ekki mikið fyrir markaðsleiðir, eða eins og hún orðaði það, þau hafi ekki talað fyrir því að fara með alla skapaða hluti á markað. En það er ekki verið að leggja til að markaðsvæða allt. Það er bara gert ráð fyrir að við notum rétta leið til þess að fá rétta verðið fyrir auðlindanotkun og mér þykir ekki mikið fyrir því satt best að segja, stundum er markaðsleiðin bara besta leiðin til að gera það, ekkert alltaf, en stundum. Hún hefur almennt nýst betur en að ríkið ákveðið það, eins og dæmin sanna, hér sem annars staðar. Ég vil ekki nudda Vinstrihreyfingunni – grænu framboði upp úr því sérstaklega en auglýsi eftir aðeins nánari skýringum á því frá hv. þingmönnum VG hvað það er við þessar markaðsleiðir sem er slæmt eða hvaða afleiðingar það hefur sem eru slæmar. Ég átta mig ekki á því nema það að orðið markaðsleið hljómar kannski ekki vel fyrir fólk sem kallar sig til vinstri. Það er minn skilningur og vonandi dýpkar sá skilningur eitthvað með kvöldinu eða tímanum.

En þá vil ég víkja máli mínu að breytingarákvæði. Ég nefndi áðan að í upphafi starfsins sem hæstv. forsætisráðherra hefur staðið fyrir lögðum við til að breytingarákvæðið yrði sett í forgang. Ástæðan er sú að gildandi stjórnarskrá virkar þannig að til þess að breyta henni þarf Alþingi að samþykkja breytingu, rjúfa strax þing, ekki seinna heldur strax, það er ekkert sérstaklega teygjanlegt hugtak í því samhengi, og svo þarf eftir þær kosningar nýtt þing að samþykkja sömu breytingar og þá hafa þær tekið gildi. Það hefur í för með sér að það er tilhneiging til þess að bíða með stjórnarskrárbreytingar fram í lok kjörtímabils. Ég held að það sé næstum því alltaf gert þótt ég hafi ekki skoðað hvert einasta tilfelli reyndar hvað það varðar. Sömuleiðis er aðkoma kjósenda að breytingum afskaplega lítil. Flokkar eins og Sjálfstæðisflokkurinn gera ekki sérstaklega mikinn greinarmun á þjóðaratkvæðagreiðslum og almennum alþingiskosningum. Það endurspeglast kannski í því að Sjálfstæðisflokkurinn er yfirleitt í stjórn, finnst hann hafa rétt á því að því er virðist og finnst það bara þjóðarviljinn að hann sé við stjórn og ráði sem allra flestu, það sé nú þjóðaratkvæðagreiðsla. Sumir þingmenn úr öðrum flokkum sögðu reyndar hér á þarseinasta kjörtímabili beinum orðum að farið hefði fram þjóðaratkvæðagreiðsla og vísuðu þá til alþingiskosninga. Það er fráleit hugmynd ef ég er spurður, virðulegur forseti, en það er nú þannig að við megum hafa slíkar hugmyndir í kollinum og tjá þær jafnvel upphátt.

En hvað sem því líður hafa komið fram nokkrar hugmyndir að því að breyta breytingarákvæði stjórnarskrárinnar þannig að aðkoma þjóðarinnar sé tryggð með einhverjum hætti í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fram hafa komið allnokkrar útfærslur á því, ein í drögum stjórnlagaráðs, önnur í frumvarpi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í kjölfarið, enn önnur í nefndaráliti eða framhaldsnefndaráliti, og enn ein sem kom frá hv. þm. Birgittu Jónsdóttur á sínum tíma, árið 2016 sennilega. Það er ekki mikill heilagleiki þegar kemur að efnisákvæðum þar og útfærslurnar hafa verið ýmiss konar en þær hafa átt það sammerkt að vilja auka aðkomu þjóðarinnar að breytingum á stjórnarskrá. Það er góð ástæða fyrir því. Hún er sú að þegar við kjósum til Alþingis þá kjósum við ansi marga hluti. Það er grundvallarmunurinn á þjóðaratkvæðagreiðslum og kosningum um fólk. Aðkoma kjósenda að því hvernig hlutirnir virka á Íslandi er að þeir fá nokkra bókstafi, hluta af stafrófinu okkar gullfallega, og fá að ráðstafa einum staf á fjögurra ára fresti. Það er öll aðkoman. Það er allt sem kjósandinn fær að segja um það hvernig landinu er stjórnað. Ég legg til, og vona að það hljómi ekki anarkískt, að það megi alveg vera aðeins meira en það. Bókstafirnir mættu vera fimm, jafnvel tíu. Kannski væri best ef kjósendur hefðu einhvern rétt sem þeir gætu sjálfir nýtt til að ákveða hlutina beint, hefðu bara heilan helling af bókstöfum fyrir framan sig, kannski í formi frumvarps eða tillögu þar sem kjósendur gætu lesið tillöguna og sagt þá já eða nei við öllum þeim gullfallegu orðum sem þar stæðu. Mér finnst það ekkert klikkuð pæling, virðulegur forseti, mér finnst hún bara tiltölulega hógvær og sjálfsögð, það finnst mér, verandi Pírati og allt það.

Hæstv. fjármálaráðherra fór áðan yfir það að honum þætti eðlilegra að nota hið gildandi ákvæði til að breyta stjórnarskrá og fórum við aðeins í smákarp í andsvörum um það hvernig í ósköpunum það ætti að þykja lýðræðislegra en þær hugmyndir sem hafa komið upp um það að breyta breytingarákvæði stjórnarskrár. En þá vildi hæstv. fjármálaráðherra verja sig með því að hann hefði verið að tala um stjórnlagaþings- og stjórnlagaráðsfyrirbærið og allt það havarí sem var farið í á sínum tíma, fyrir alllöngu síðan. Því vil ég svara svona: Ef stjórnmálamenn á Íslandi ætla að segja að þeir vilji aðkomu þjóðarviljans þá skulu þeir koma fram með tillögur þess efnis, hvort sem það felur í sér ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu eða gildistökuákvæði með þjóðaratkvæðagreiðslu eða breytingarákvæði stjórnarskrár með þjóðaratkvæðagreiðslu eða nýtt stjórnlagaráð eða hvað eina, bara að þeir komi fram með einhverjar tillögur. En sá málflutningur að lýðræðislegasta leiðin sé að gera þetta eins og þetta hafi alltaf verið gert, virðulegi forseti, þykir mér beinlínis hlægileg. Þegar grafið er í söguna verður hún það mjög hratt. Enda hygg ég að andstaðan við breytingar í þessum efnum byggist fyrst og fremst á ótrúlegri meintri dýrð fortíðarinnar, sem er skoðun sem ég deili ekki.

Síðast en ekki síst vil ég fjalla, á síðustu mínútunum sem ég hef, um veginn fram undan því að mér er hann því miður pínu óskýr. Ég veit ekki hvernig fer með þetta frumvarp og ég segi stundum við fjölmiðla, reyndar mjög oft, að því lengur sem ég starfi í pólitík því erfiðara finnist mér að spá fyrir um framtíðina. En ég veit það eitt að sú hugmynd að þjóðin sé stjórnarskrárgjafinn er ekki að fara aftur inn í flöskuna. Sá andi er laus. Hann er ekki að fara að gufa upp, hann er ekki að fara neitt, hann verður áfram. Það er ákveðin togstreita á milli grundvallarhugmynda um hvernig breyta skuli stjórnarskrá eða setja nýja stjórnarskrá á grundvelli lýðveldisins Íslands. Þá blasir við sá vandi að ef það eru stjórnmálamenn sem eiga sjálfir að ákveða hvernig stjórnarskráin heftir völd þeirra þá verður alltaf ákveðið vanhæfi til staðar. Stjórnmálamenn ætla sjálfir að setja sér leikreglur. Ég tel eðlilegra og skynsamlegra að einhver önnur samkoma setji löggjafarvaldinu, framkvæmdarvaldinu og dómsvaldinu mörk í stjórnarskrá. Það batterí yrði einhvern veginn lýðræðislega kosið og helst með sem mestri aðkomu kjósenda sjálfra, margar leiðir eru vísar í þeim efnum. En ég sé ekki fyrir mér, jafnvel þótt þetta verði samþykkt, að neitt breytist í grundvallaratriðum um þessar skörpu, óljósu sýnir á það hver sé stjórnarskrárgjafinn, því að þegar við fengum stjórnarskrá um hin sérstöku málefni Íslands árið 1874 var sama fyrirkomulag við lýði, tvö þing með kosningum á milli skyldu samþykkja nýja stjórnarskrá. Síðan hefur ansi mikið vatn runnið til sjávar. Við höfum orðið sjálfstætt lýðveldi en við höfum trassað að setja okkur nýja stjórnarskrá, grundvallaða á þeim hugsjónum, þeirri sýn sem við höfum um okkur sjálf. Við höfum enn þá tækifæri til að breyta því í stað þess að vísa til þess að hlutirnir hafi alltaf verið eins og þeir eru eða það beri að virða hvernig stjórnarskráin sé núna, sem er satt í ákveðnum skilningi, ekki þó satt í þeim skilningi að við eigum aldrei að breyta henni eða leggja til breytingar á henni. En það þarf að vera skýrt, virðulegur forseti, því að við komumst ekki áfram sem lýðveldi nútímans nema með því að útkljá þessa grundvallarspurningu: Hver er stjórnarskrárgjafinn? Það er spurningin og svarið er: Þjóðin.