151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:41]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir ræðuna. Ég vil byrja á að taka það fram að ég er sammála niðurlagi ræðu hans, að auðvitað er það á endanum þjóðin sem er stjórnarskrárgjafinn, þannig ætti það a.m.k. að vera og ég get alveg tekið undir þá sýn þingmannsins. Mér hefur reyndar persónulega þótt vanta að þegar breytingar hafa verið gerðar á stjórnarskránni þá hefur það eiginlega verið meira þannig að þjóðin hafi gefið ætlað samþykki sitt við þeim breytingum fremur en að hún hafi beinlínis kosið um þær af því að það hefur alltaf verið kosið um þær í tengslum við alþingiskosningar án þess að einhver sérstök skil væru þar á milli. En það er nú annað.

Þingmanninum varð tíðrætt um ferlið, hvernig allt þetta væri gert og talaði dálítið mikið um 79. gr. Mig langar í fyrri umgangi að spyrja þingmanninn aðeins út í það hvort honum finnist að það eigi að vera auðvelt að breyta stjórnarskrá og hvort það eigi að vera svo að þannig séð eigi að vera hægt að gera breytingar á stjórnarskránni frá þingi til þings eftir því hvernig vindar blása í samfélaginu. Eða telur þingmaðurinn að til þess að slíkt gæti gengið yrði að vera annað tveggja; aukinn meiri hluta á þingi sem ákvæði slíkt eða aukinn meiri hluti í þjóðaratkvæðagreiðslum á milli? Eða er þingmaðurinn virkilega að kalla eftir því að það sé raunverulega hægt að breyta bara frá þingi til þings án nokkurra sérstakra vandkvæða?