151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:44]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ja, hvað ætli séu sérstök vandkvæði í pólitískum skilningi? Svar mitt er nei. Mér finnst ekki að það eigi að vera auðvelt að breyta stjórnarskrá. Mér finnst að það eigi að vera erfitt, ekki ómögulegt, en ég verð að viðurkenna að ég er ekki með endanlega útgáfu í kollinum á því hvernig því sé best fyrir komið. Hins vegar er ég staðfastlega þeirrar skoðunar að kjósendur eigi að koma að þeirri ákvörðun. Ástæðan er sú að í þingkosningum erum við að kjósa um svo marga hluti í einu eins og ég fór aðeins yfir áðan. Við höfum í raun og veru bara einn bókstaf af mjög takmörkuðu mengi til að segja allt sem við höfum að segja. Og sem dæmi hef ég oft sagt áður en ég varð þingmaður, og reyndar eftir að ég varð þingmaður, að ég er oft mjög sammála Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um ýmislegt og sammála Sjálfstæðisflokknum um annað. Ég þarf að velja annað hvort. Ég skil ekki alveg af hverju. Af hverju má ekki bara velja meira og betur? Það gæti reyndar dregið mig inn í umræðu um annað en ég ætla ekki að gera það hér í andsvörum, þ.e. um forgangskosningu.

Fyrir mér er aðalatriðið aðkoma þjóðarinnar að málinu vegna þess að í kosningum drukknar hvert málefni í öllum hinum. Við erum aldrei bara að kjósa um skatta, eða forræðishyggju á móti frjálslyndi. Við erum aldrei bara að kjósa um einstök málefni. Við sem höfum verið í kosningabaráttu, sem eru auðvitað allir hér inni, þekkjum það alveg að við erum að reyna að höfða til kjósenda út frá okkar eigin gildum og því sem við trúum. En við erum ekki endilega með öll svör til hvers einasta kjósanda, við erum reyndar sennilega ekki með öll svör til eins einasta kjósanda. Þetta er allt saman í belg og biðu. Þetta er allt saman í sama pottinum. En þegar kemur að stjórnarskránni er um svona grundvallaratriði að ræða um það hvernig þjóðríki við ætlum að vera og þá finnst mér eðlilegt að þeirri spurningu sé svarað alveg sérstaklega, alveg burt séð frá því hvað kjósandinn vill að öðru leyti, það er aðalatriðið fyrir mér. Útfærslan á því er t.d. aukinn meiri hluti þings og jafnvel aukinn meiri hluti kjósenda, ég er opinn fyrir slíkum hugmyndum en vara þó við því að slíkar kvaðir séu settar að það komi niður á lýðræðisferlinu sjálfu. Ég hef ekki tíma til að útskýra það, kem kannski að því í seinna andsvari.