151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:46]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við erum að þessu leyti til sammála hvað það varðar. Okkur finnst greinilega báðum að við, eða þjóðin, höfum svolítið verið snuðuð um það að fá beinlínis að greiða atkvæði um stjórnarskrá þegar breytingarnar eru undir í kosningum. Ég hef alla vega verið þar. Hins vegar er þessi þáttur ekki inni í þeim breytingum sem eru hér til umræðu. En hv. þingmaður kom inn á það að þegar hafa verið lagðar fram breytingartillögur sem verða ræddar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Gott og vel. En varðandi þær breytingar sem eru hér undir, og við erum að ræða núna frumvarp hæstv. forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskránni efnislega, þykir hv. þingmanni það eftirsóknarvert, ég veit ekki hvort maður á að segja það, að ræða frekar þær tillögur sem þó eru á borðinu efnislega, reyna að ná sameiginlegri lendingu með þeim annaðhvort í þingsalnum eða í nefndinni og bera þær síðan aftur fyrir þingið og láta á það reyna hvort það er einhver meiri hluti í þinginu til að gera þó a.m.k. þessar breytingar? Þinginu virðist hafa reynst þetta erfitt eins og hv. þingmaður kom inn á, af nokkurri svartsýni, vil ég meina, en er það ekki samt skylda okkar að færa þinginu það verkefni að þurfa raunverulega að taka afstöðu? Er það ekki skylda okkar sem þings, þjóðkjörins þings, að koma einhverri afurð hingað aftur inn í þingsal eftir umræðu í nefndinni þannig að þingið þurfi raunverulega að taka afstöðu til hennar? Er það ekki okkar verkefni?