151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:48]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er væntanlega ætlast til þess að auðvelt sé að segja já. Ég skal segja já — en. Frumvarpið sem var til umræðu 2013 komst ekki til atkvæðagreiðslu. Frumvarpið sem Samfylkingin og Píratar og aðrir hafa lagt fram hérna síðustu þing hefur ekki komist til atkvæðagreiðslu. Í grunninn, hugmyndafræðilega séð er svarið já. Mér finnst að þingheimur eigi að taka afstöðu til þess. En ég vildi að það gilti um þær hugmyndir sem liggja á borðinu vegna þess að ég hef tekið eftir því að það virðist vera áberandi minni vissa hjá þingmönnum um það hvernig þeir eigi að taka á þessu máli en meðal þeirra sem ég ræði við og það á bæði við um fólk sem er á móti nýrri stjórnarskrá eða hlynnt henni. Ég sé til hvort mér takist að komast í aðra ræðu á eftir. Mig langar aðeins að fjalla um það á eftir hvernig viðhorfið til nýrrar stjórnarskrár einkennist af ákveðnu skeytingarleysi úr ákveðnum áttum í samfélaginu og ekki bara frá kommentakerfunum, ég er að tala um aðila sem er treyst til að kynna sér málin, skoða þau af alvöru og veita alvöruálit sem eru gagnleg til uppbyggingar. Mér hefur þótt skorta á slíkt.

Ég vona að þetta svari spurningu hv. þingmanns. Ég álasa ekki hæstv. forsætisráðherra fyrir að leggja fram þetta mál til umræðu og ég gleðst yfir því að við séum þó að tala um stjórnarskrána því að það er mikilvæg umræða og allt það. En mér finnst hins vegar miðað við þá ætlan að við einbeitum okkur alfarið að efnislegum þáttum þessa frumvarps, þá þurfi að spyrja spurningarinnar um það hvers vegna við erum þá ekki efnislega að tala um allt hitt. Þar er ósanngirnin í því að mér finnst, það er ekki andstaða við að ræða þetta mál. Ég vildi bara óska þess að við ræddum annað líka.