151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:50]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér gríðarlega mikilvægt þingmannamál sem er afurð mikillar vinnu, ég ætla að draga það fram. Ég hef sagt lengi af heilum hug að þetta hafi verið vönduð vinna. Ég studdi forsætisráðherra, formann Vinstri grænna — af því að þetta er þingmannamál þá ætla ég kannski að tala um formann Vinstri grænna frekar en hæstv. forsætisráðherra — í því að fara í heildarendurskoðun á stjórnarskránni, að við gæfum okkur tvö kjörtímabil og áfangaskiptum verkefnum. Ég skynja það að ég er ekki á ósvipuðum slóðum og hæstv. forsætisráðherra og formaður VG varðandi það hvernig hægt er að breyta stjórnarskrá. Jómfrúrræða mín 1999 var einmitt um stjórnarskrána, um jafnt vægi atkvæða. En þar hefur ekkert breyst og ég kem kannski inn á það á eftir. En vinnan var góð og auðvitað voru allir þar af heilindum en ég vil líka draga fram að þar voru bara þannig skoðanir að maður fann strax að framlag ákveðinna formanna var kannski ekki mikið af því að þeir, og það hefur komið fram í dag, vilja ekki miklar breytingar. Það er gömul saga og ný. Það er skoðun og nálgun og við skulum virða hana.

Ég hef oft fengið á fundum út af þessari stjórnarskrárvinnu athugasemdir um að við værum að taka þátt með þessum hætti og værum ekki að styðja hinar og þessar útfærslur, hvort sem þar er talað um nýja stjórnarskrá eða annað. Ég vil vekja athygli á því að Viðreisn er með skýra stefnu hvað það varðar. Bara síðast á landsþingi okkar um daginn var það undirstrikað að við viljum endurskoðun á stjórnarskránni í samræmi við m.a. tillögur stjórnlagaráðs en ekki síður að farið verði yfir þær breytingar sem hafa orðið síðan. Flokkurinn hefur reglulega verið upplýstur um það hvernig þessari vinnu hefur undið fram. Engu að síður, og ég vil draga það fram, eru skiptar skoðanir innan flokksins hvað varðar afstöðuna til breytinga á stjórnarskrá. Það mótast að mínu mati ekki síst út frá því að við upplifum alltaf, eins og kom mjög skýrt fram í máli formanns Sjálfstæðisflokksins áðan, þvergirðingu gagnvart öllum breytingum sem snerta raunverulegt auðlindaákvæði með inntaki sem virkjar þjóðareignina. Ég mun fara yfir það á eftir.

Ég studdi formann VG eindregið í þessari vinnu og það var gaman að taka þátt í henni framan af en undir lokin áttaði maður sig á því að þetta var byrjað að snúast meira um það hvernig stjórnarflokkarnir gætu komið heilir út úr þessari vinnu heldur en að við værum til að mynda með auðlindaákvæði sem myndi virkja þjóðareignina. Það dugar ekki eitt og sér að setja orðið þjóðareign inn, það verður að hafa inntak. Eins og ákvæðið er núna breytir það engu miðað við núgildandi lög, ég kem líka að því síðar.

Í þessari miklu vinnu, og nokkuð hefur verið farið yfir það, áfangaskiptum við verkefnunum og það var bara ansi erfitt, virðulegi forseti, að taka afstöðu til þess hvaða mál ættu að bíða og hver ekki. Þá þurftu formenn að forgangsraða og hugsa hver heildarmyndin og -sýnin væri. Sýnin hjá mér, og að ég held líka hjá formanni VG, var sú að eftir tvö kjörtímabil hefði þingið farið heildstætt yfir stjórnarskrána, tekið tillit til ýmissa sjónarmiða, ekki endilega breytt öllu en farið engu að síður yfir hana með þessi viðmið.

Ég minntist áðan á jómfrúrræðu mína. Hún snerti jafnt vægi atkvæða. Það hefur alltaf verið mér mikið hjartans mál og ég man að ég rauk upp á sínum tíma, án þess að átta mig á því að það væri jómfrúrræða, þetta var bara stutt athugasemd, af því að það er ekki rétt þegar vægi atkvæða fer eftir því hvar fólk býr á landinu. Ég skil vel að bæta þurfi innviði og vinna gegn ýmsu óréttlæti sem landsbyggðin stendur til að mynda frammi fyrir en það verður ekki gert á grunni misvægis atkvæða. Við gerum það með öðrum hætti. Mér finnst miður að nú hafi liðið hátt í 21 ár og ekkert breyst hvað það varðar. Það var því erfitt fyrir mig að samþykkja að beðið yrði með þetta gríðarlega prinsippmál Viðreisnar um jafnt vægi atkvæða, einn maður eitt atkvæði, fram á næsta kjörtímabil. En í staðinn sá ég að við færum í mikla vinnu út af auðlindaákvæði, færum í breytingu og skerpingu á forseta- og framkvæmdarvaldskaflanum en kæmum ekki síst með skýrt framsalsákvæði auk ákvæðis um þjóðaratkvæðagreiðslur sem var mikilvægt, eins og kom fram hjá hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni áðan. Í hans huga er það einna mikilvægasta ákvæðið.

En hvað gerðist? Fljótlega eftir að samkomulag náðist um að áfangaskipta vinnunni var alveg ljóst að stjórnarflokkarnir auk Miðflokksins höfðu engan áhuga á framsalsákvæði. Vissulega fóru að renna á mig tvær grímur þegar þjóðaratkvæðagreiðslurnar fóru líka út og síðan fékk breytingarákvæðið, sem ekki síst Samfylkingin og Píratar hafa lagt mikla áherslu á, ekki heldur umræðu. Það sem fékk í rauninni umræðu og umfjöllun var annars vegar eitthvað sem við gátum sætt okkur við og stutt, og ég heyri það á ræðum flestra ræðumanna, eins og ákvæði um íslenska tungu eðlilega og fleiri ákvæði, og hins vegar auðlindaákvæði sem heldur stjórnarflokkunum saman og breytir ekki neinu. Þó að maður hafi einhverja reynslu í pólitík þá var ég alltaf innst inni, og það er kannski einfeldni af minni hálfu, að vona að við sæjum fram á raunverulega breytt vinnubrögð, breytta nálgun sem fæli í sér að sá sem leiddi stjórnarskrárvinnu hefði raunverulegt vald til að leita samstarfs þvert yfir stjórn og stjórnarandstöðu. Að það þyrfti ekki alltaf að leita blessunar einhvers sem hinir stjórnarflokkarnir gætu sætt sig við, heldur værum við að reyna að ná breiðri samstöðu eins og uppleggið var. Uppleggið var einmitt að það ætti að leggja breytingar fram í nokkrum málum. Ef ekki væri sátt um málið þá yrði alla vega breið samstaða um það. Í ljós hefur komið að svo er ekki.

Steininn tók svolítið úr þegar við fórum fram með rökræðukönnunina. Ég ætla ekki að gagnrýna hana, ég studdi það hvernig við fórum í hana og mér fannst ekki rétt sem ég heyrði fyrr í dag þegar verið var að gagnrýna aðferðafræðina og spyrja hvort einhverjir væru vinir forsætisráðherra eða innan Vinstri grænna. Ég ætla að draga fram að sú vinna var vel unnin og þar var hægt að rýna mjög til gagns og fá fram nokkuð skýran vilja hjá almenningi. Við vorum að reyna að draga fram almenningsvilja. Þar kom margt mjög áhugavert fram, m.a. um jafnt vægi atkvæða. Því meira sem menn fóru í það, því meiri varð stuðningurinn, til að mynda á landsbyggðinni, þegar menn áttuðu sig á því út á hvað hugmyndin gengi. En þó að búið væri að slaufa framsalsákvæðinu og slaufa þjóðaratkvæðagreiðslum var ekki farið í að taka inn jafnt vægi atkvæða þrátt fyrir ríkan vilja almennings til að taka á því máli.

Ég geri mér grein fyrir því eftir ræður dagsins að það mál er ekki ofarlega í forgangsröðinni. Ég segi það m.a. af því að formaður Sjálfstæðisflokksins ræddi ýmis mál hér og dró m.a. fram kjördæmaskiptinguna. Já, það má alveg deila um kjördæmaskiptinguna, hann vill greinilega hafa fleiri kjördæmi, en ég hef í síðari tíð hallast frekar að því að hafa landið eitt kjördæmi og afgreiða í eitt skipti fyrir öll jafnt vægi atkvæða. En aldrei leiddi hann talið að jöfnu vægi atkvæða sem skiptir svo miklu máli. En ég vil um leið fagna því að innan Sjálfstæðisflokksins eru raddir sem hafa byrjað að ræða þann anga málsins. Rökræðukönnunin dró fram þennan vilja, sama könnun og formaðurinn notaði síðan til að rökstyðja að það væri gott að fólk væri andsnúið landsdómi, sem ég fagna líka, og notaði til að ýta undir mál sitt þegar hann ræddi forsetakaflann. Þar var í engu farið í það sem var skýr leiðsögn til okkar formanna, að taka á jöfnu vægi atkvæða. Þetta er eitt af þeim málum sem ég sé til að mynda Viðreisn lofa að við klárum á næsta kjörtímabili. Við verðum að lofa því að halda áfram með það verklag sem lagt er upp með og klára málið. Ég vona að hæstv. forsætisráðherra og formaður VG sé sammála mér um að það sem við náðum ekki að klára núna klárum við á næsta kjörtímabili. Annars er það alltaf þannig að á endanum er það Sjálfstæðisflokkurinn eða Framsókn sem ræður öllu þegar kemur að stjórnarskránni.

Ég vil undirstrika að það eru ýmsar skoðanir varðandi það hvernig við eigum að breyta stjórnarskránni. Ég hef verið, eins og ég sagði áðan, frekar hlynnt þeim skrefum og þeirri aðferðafræði sem hefur verið lagt upp með, að þingið geri það og taki sér tíma en reyni einmitt að skoða hvað hefur verið gert. Þá er rétt upplegg að horfa til stjórnlagaráðs, þjóðaratkvæðagreiðslunnar, þjóðfundar, vinnunnar síðan þá og reyna að nýta rökræðukönnunina. Ég tel það skynsamlega nálgun en hún má ekki verða til þess á þessu stigi að við komumst ekki lengra. Það er óboðlegt. Þetta er eitthvað sem við skuldum þjóðinni. Formaður Vinstri grænna hefur sagt hér ítrekað að við skuldum samfélaginu að klára þetta. Já, við skuldum samfélaginu að klára m.a. þessar breytingar og gera það með sóma en við eigum heldur ekki að selja þjóðinni eitthvað sem er ekki rétt eins og auðlindaákvæðið.

Ég ætla að eyða mestum tíma, eðlilega, í auðlindaákvæði því að það er langstærsta málið og ég vil að fólk setji allar viðvörunarbjöllur í gang þegar það hugsar um málið og pælir í því hvað sé í rauninni verið að selja þjóðinni, en ég vil líka geta þess og undirstrika að ég bauðst til að vera með á frumvarpi um íslenskuna enda ekki nema eðlilegt. Ég tók þátt í því að móta það ákvæði á fundunum. Eins með umhverfisákvæðið og forsetakaflann, það eru mál sem ég lýsti yfir við formann VG að ég væri tilbúin, og Viðreisn væri tilbúin, að vera með á til að reyna að ná sem mestri samstöðu um þau og vonandi fá fleiri flokka til þess að gera það. Ég fagna því að ég heyri að fólk sé tilbúið til að skoða þá þætti meira og frekar.

Varðandi forsetakaflann eru atriði sem má velta vöngum yfir en þar eru líka atriði sem ég held að séu fagnaðarefni. Við sjáum að verið er að taka á ákæruvaldi gagnvart ráðherra, þegar á að ákæra ráðherra fyrir embættisrekstur, og taka á ráðherraábyrgð. Ég tek undir athugasemdir sem hafa komið hér fram að við þurfum aðeins að móta það hvernig framhaldið verður, hvaða lögum þarf að breyta og þá hvernig. En þarna eru stigin mikilvæg skref. Ég er þeirrar skoðunar að tímamörk eigi að vera á setu í embætti forseta Íslands. Hvort það eru 12 ár eða 16 ár er ekki stóra málið en ég held að það sé ekki í samræmi við eðlilegar lýðræðisreglur að við höfum það svigrúm. Þrátt fyrir að embættið sé að margra mati valdalítið er það áhrifamikið og ég tel að það skipti máli að við sjáum fram á endurnýjun á einhverra ára fresti. Mér finnst tillagan sem formaður VG setti fram allrar athygli verð. Við ræddum það og það var eitt af því sem við áttum skemmtilegar samræður um. Ég tel mikilvægt að þingið fái það svigrúm sem þarf til að meta það og fara yfir.

Ég tel mjög mikilvægt að umhverfisákvæði verði samþykkt. Ég tel brýnt að umhverfisákvæði eins og það lítur hér dagsins ljós fái góða yfirferð hér í þinginu að sjálfsögðu en brýnt að við samþykkjum það með þeim hætti að það sé skýrt hver vilji löggjafarþingsins er gagnvart umhverfi og náttúru Íslands. Það finnst mér mikilvægt og mun, að breyttu breytanda, gera mitt til að styðja það.

En hér er náttúrlega einn hængur á og hann er sá að í þessu frumvarpi er auðlindaákvæði sem ég segi að sé stórhættulegt eins og það er núna. Það kemur engum á óvart eftir allt þetta og það segir svolítið mikið um þetta ákvæði, þekkjandi vel aðdragandann og hafandi tekið þátt í umræðum fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins um stjórnarskrána, að ef þetta er ákvæði sem Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir og Framsóknarflokkurinn samþykkir, og eftir atvikum hugsanlega ekki bara Vinstri græn heldur Miðflokkurinn líka, þá er verið að segja ákveðna sögu. Þar er verið að segja þá sögu að ekki sé verið að breyta neinu. 1. gr. fiskveiðistjórnarlaganna er það sem hún er og þetta ákvæði gerir ekkert meira en það. Enda segir Lagastofnun Háskóla Íslands nákvæmlega að hér sé ekki verið að breyta neinu í íslenskri framkvæmd, ekki neinu. Það þýðir að enn er mikil óvissa um tímamörk þeirra sem hafa yfir auðlindum okkar að ráða, hvort sem það er fiskveiðiauðlindin eða aðrar auðlindir. Og af hverju er það þannig að við tímabindum og gerum samninga? Það er það sem við eigum að gera, gera samninga um auðlindirnar eins og formaður Framsóknarflokksins lagði til á sínum tíma, tímabundna samninga, en hann virðist núna hafa fallið frá þeirri hugmynd. Við eigum að tímabinda samninga um auðlindirnar og sjávarútvegurinn er þar ekki undanskilinn. Með þessu ákvæði er verið að undanskilja sjávarauðlindina. Verið er að sérhanna auðlindaákvæði fyrir sérumhverfi fiskveiðistjórnarkerfisins. Með okkar tillögum er ekki verið að kollvarpa fiskveiðistjórnarkerfinu, aldeilis ekki. Mín tillaga varðandi breytingu á auðlindaákvæðinu felur einfaldlega í sér að í stjórnarskrá eigi að kveða á um að gera eigi tímabundna samninga. Það er ekki verið að tala um tímalengdina. Það er löggjafans að ákveða tímalengdina. Eru samningarnir gerðir til 15, 20 eða 25 ára? Það er bara verið að segja í stjórnarskrá að ekki sé heimilt fyrir löggjafann, fyrir framkvæmdarvaldið, að afhenda auðlindir nema með tímabundnum samningum.

Þrátt fyrir Vatneyrardóminn og þrátt fyrir umhverfi 1. gr. fiskveiðistjórnarlaga er enn verulega mikil óvissa um það hver tímamörkin eru. Vel að merkja sagði formaður atvinnuveganefndar þingsins, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, hér á þingi að þetta væri allt hið ömurlegasta mál á sínum tíma þegar verið var að ræða um veiðiheimildir og hverjir gætu framselt slíkar heimildir. Þá sagði hún m.a. að veiðirétturinn myndi flytjast á milli kynslóða um aldur og ævi og undirstrikaði þar með þá nálgun sína og meiri hlutans hér á þingi að þar er um ótímabundna þjóðareign að ræða að þeirra mati.

Ég hef ekki fengið svör við því önnur en einhvern undanslátt, engin skýr svör, ekki annað en að þetta sé rosalega skýrt í huga formanns VG. Hún og formaður Sjálfstæðisflokksins hafa bæði haldið ræður hér í dag en þau eru ekki tilbúin til að setja þessi skýru orð, tímabundnir samningar, í stjórnarskrá þannig að enginn vafi sé um rétt þjóðarinnar varðandi þjóðareignina, að við virkjum þjóðareignina raunverulega en séum ekki með leiktjöld og sýndarmennsku. Ef við skuldum samfélaginu eitthvað þá er það að tala skýrt, að segja að við ætlum ekki að afhenda heimildir til auðlindanýtingar, hvar sem þær eru, til ótakmarkaðs tíma, bara alls ekki. Af hverju má þá ekki segja það skýrt í ákvæðinu sjálfu? Það dugar ekki fyrir mig að formaður VG segi það í framhjáhlaupi í ræðu sinni eða að það standi á bls. 37 í greinargerð með frumvarpinu að þetta feli í sér að nýtingarheimildir þurfi að vera tímabundnar eða uppsegjanlegar. Af hverju stendur það þá ekki bara beinlínis í greininni ef það er tilgangurinn? Við hvað eru menn hræddir?

Ég vil minna á að auðlindanefndin sem starfaði árið 2000, undir forystu Jóhannesar Nordals, setti fram mjög skýra tillögu um það hvernig ætti að tryggja raunverulega sameign þjóðarinnar á auðlindum. Hún áttaði sig alveg á því að 1. gr. fiskveiðistjórnarlaga frá árinu 1991 dugði ekki til að tryggja sameign þjóðarinnar á auðlindum. Þetta tók til allra auðlinda og það var alveg skýrt að þær ættu að vera tímabundnar eða uppsegjanlegar með einhverjum fyrirvara. Það var líka alveg skýrt hvaða lögum þyrfti að breyta. Lagastofnun Háskóla Íslands og forsætisráðherra og formaður VG hafa sagt það ítrekað að þetta breyti bara engu. Hvern er verið að blekkja? Af hverju eru hlutirnir ekki sagðir hreint út?

Þetta er mjög alvarlegt en um leið vil ég draga fram að við erum í 1. umr. um málið í þinginu og ég ætla enn þá að leyfa mér að vona að við fáum breytt vinnubrögð og nýja nálgun. Látum ekki enn og aftur Sjálfstæðisflokkinn stjórna því hvernig auðlindaákvæði verði hér á landi og fáum raunverulega virka þjóðareign inn í auðlindaákvæðið. Tillaga mín er unnin út frá tillögu forsætisráðherra og er viðleitni mín til þess að reyna að ná einhverri sátt um auðlindaákvæði. En það er ekki hægt að gefa afslátt af því að mínu mati að virkja ekki þjóðareignina og ekki hægt að fara með falleg orð inn í stjórnarskrá og segja að það skipti rosalega miklu máli að það sé komið inn í stjórnarskrá þegar allir segja að þetta breyti engu.

Er þetta pólitík? Já, þetta er pólitík, harðkjarnapólitík. Snýst pólitíkin um að vilja umturna fiskveiðistjórnarkerfinu? Nei, alls ekki. Það eru útúrsnúningar. En það er hins vegar gott að skynja það hver nálgun Sjálfstæðisflokksins, og núna ríkisstjórnarflokkanna, er í þessu stjórnarskrármáli, í auðlindamálinu. Hún er að móta enn og aftur, kannast einhver við það, sérreglu fyrir sjávarútveginn. Þau eiga eftir að svara því af hverju sjávarútvegurinn, ein atvinnugreina, ein auðlindagreina, á að vera án tímabundinna samninga. Við þurfum að virkja þjóðareignina. Þetta ákvæði gerir það ekki. Tímabinding er almenn regla í lögum á Íslandi. Sjávarútvegurinn er undantekningin. Þessi leið ver sérstöðu sjávarútvegsins, hún ver ekki þjóðina. Hún virkjar ekki þjóðareignina. Það kemur alveg skýrt fram hjá Lagastofnun, hún breytir engu. Tímabindingin á að mínu mati og okkar í Viðreisn að taka tillit til allra auðlinda. Þess vegna legg ég ekki til að nýtingartíminn verði ákveðinn í stjórnarskrá. Það er löggjafans að ákveða það, eins og t.d. núverandi hæstv. samgönguráðherra gerði á sínum tíma sem þáverandi sjávarútvegsráðherra þegar hann lagði fram tillögu sem fól í sér ákveðna tímabundna samninga með uppsegjanlegu ákvæði, 8 og 15 ára minnir mig að það hafi verið, samtals gat það verið allt upp í 23 ár. Það var tímabinding. Það var leið.

Vinstri græn verða að útskýra það fyrir mér og þjóðinni hvað breyttist árið 2017. Árið 2017, m.a. í þeirri nefnd sem ég skipaði á sínum tíma sem sjávarútvegsráðherra, var alveg skýrt að Vinstri græn vildu tímabindingu. Þau gátu m.a. sætt sig við frumvarp Framsóknarflokksins um tímabindingu. Hvað breyttist? Jú, Vinstri græn fóru í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og þá breyttist allt. Það er skrýtið en ætti ekki að koma á óvart þegar maður hefur séð alla þróunina og ferilinn í þessu.

Auðlindanefndin árið 2000 gaf skýra leiðsögn. Hér er ekki farið eftir henni. Sú leið sem er farin hér er eitthvað allt annað en að virkja þjóðareignina. Þetta er svo mikið risamál, það er svo mikil alvara á bak við þetta og þessa gagnrýni og nálgun. Ég biðla til þingheims að skoða mjög vel m.a. þá leið sem ég er að leggja til, að segja það skýrt, eins og segir í greinargerðinni, að við tímabindum réttindin, setjum það inn í greinina til að tryggja raunverulega þjóðareign.

Ég get alveg tekið undir með hæstv. forsætisráðherra og formanni VG að við getum rætt um eðlilegt gjald og útfærslu á því og er sammála þeirri nálgun að á endanum sé það þingið sem ákveður hvernig við fáum fullt eða eðlilegt gjald. Leið okkar í Viðreisn er að tala um markaðsleið því að þannig teljum við að þjóðin fái skynsamlegasta, eðlilegasta og mesta gjaldið. En það er eitthvað sem við tökum á hér inni. Ég er ekki að leggja til að það verði sett í stjórnarskrá. Fyrst og fremst verði gjald tekið fyrir og það verði á endanum löggjafinn sem segi til um það. Ég horfi á tímabindinguna fyrst og fremst.

Stjórnarskráin verðskuldar ekki þessa umræðu. Þetta sagði hæstv. forsætisráðherra fyrir nokkrum dögum og ég er sammála því. Ég er sammála því að stjórnarskráin eigi betri meðferð skilið. Hún á það líka skilið að við komum hreint fram og segjum hlutina. Ef þetta er til þess að halda stjórninni saman og stjórnarflokkunum saman, þá er það bara fínt. Ef ætlunin er að breyta ekki neinu, segið það þá líka. Ef ekki á að treysta grundvöllinn undir þjóðareignina er bara heiðarlegast að segja það. Stjórnarskráin á það skilið, fólkið á það skilið. Við sáum það m.a. í Bandaríkjunum þegar fyrrverandi forseti, Trump, fór í þann leiðangur að skipa eftirmann Ruth Ginsburg hæstaréttardómara, að sú ákvörðun hans að setja afturhald og öfgasjónarmið inn í réttinn mun hafa áhrif á réttinn til næstu áratuga. Þess vegna er þetta svo mikil alvara hér þegar við stöndum frammi fyrir þessum breytingum, þetta eru ekki breytingar sem munu gilda örstutt heldur í áratugi ef þetta verður samþykkt eftir næstu kosningar.

Virðulegur forseti. Ég er reyndar rétt að byrja en ég sé að það er mínúta eftir. Tjónið sem þessi tillaga formanns Vinstri grænna skapar er tjón sem mun lifa með næstu kynslóðum. Þessi afurð, þetta frumvarp, svarar því svart á hvítu að þessir þrír flokkar, hugsanlega með stuðningi Miðflokksins, ætla að halda samstarfinu áfram eftir kosningar. Það liggur alveg ljóst fyrir. Það þarf meiri hluta eftir næstu kosningar og þá þarf að samþykkja að hafa þetta óvirka stjórnarskrárákvæði. Þetta er því líka yfirlýsing um að þessir flokkar ætli að halda áfram til að geta klárað nákvæmlega þetta mál af því að það þarf samþykkt þingsins. Afleiðingin er síðan sú að sjávarauðlindin verður áfram í eigu og á forræði hinna fáu, á þeirra forsendum en ekki þjóðarinnar. Ef svo reynist verður það á endanum hin raunverulega vonda arfleifð þessarar ríkisstjórnar.