151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[20:21]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég ætla bara að vera heiðarlegur og segja að ég er mjög hugsi eftir ræðu hv. þingmanns. Mér fannst hún byrja vel. Hún talaði um að skuldbinda okkur til að klára það á næsta kjörtímabili sem ekki náðist núna eins og jafnt vægi atkvæða, sem var reyndar alltaf dagskrá á næsta kjörtímabili hjá hæstv. forsætisráðherra, að halda áfram með það sem ekki kláraðist núna. En hún endar í einhverri samsæriskenningu um að það sé í gegnum stjórnarskrárbreytingar sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð ætli að hlekkja sig við Sjálfstæðisflokkinn til að vera með honum í ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Í hvaða veröld lifir hv. þingmaður, virðulegur forseti? Að það sé í gegnum breytingar á stjórnarskrá Íslands sem hægt sé að ná tangarhaldi á Sjálfstæðisflokknum? Hv. þingmaður þekkir Sjálfstæðisflokkinn betur en ég. Ég hef aldrei verið í honum öfugt við hv. þingmann. Hún veit vel að þar er kannski ekki líklegast að fá þann af og til ágæta flokk með sér í einhvern sprett. Hún veit kannski eitthvað meira en ég um innvols Sjálfstæðisflokksins.

En að orðum hv. þingmanns um ýmislegt annað. Margt væri hægt að segja um það og væri gaman að fjalla um þetta í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. En ég ætla bara að biðja fólk um að tala ekki eins og það breyti engu að taka ákvæði sem er í lögum í dag, sem hægt er að breyta með einföldum meiri hluta á Alþingi, og setja í stjórnarskrá, sem við vitum að er tiltölulega erfitt að breyta, að það leyfi sér ekki í sinni flokkspólitík að tala eins og það breyti engu. Þá eru menn að leggja stjórnarskrárákvæði að jöfnu við lagaákvæði.