stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegi forseti. Ég skil vel að hv. þingmanni hafi þótt það gott hvernig ég byrjaði ræðu mína. Það er augljóst að hann vill að ég hossi ríkisstjórninni. Ég geri það bara gjarnan. Við í Viðreisn höfum lagt okkur fram um að hæla ríkisstjórninni þegar á við en við gagnrýnum hana þegar þörf er á. Við styðjum góð mál, við stoppum vond mál, við breytum vondum málum og reynum að hafa áhrif á þau. Og þetta mál er eitt stærsta og áhrifaríkasta mál ríkisstjórnarinnar undir forystu Vinstri grænna og það er formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem leggur það fram. Það er engin útskýring á því af hverju það er kúvending á stefnu þeirrar hreyfingar í þessum málum varðandi tímabindingu, varðandi það að virkja þjóðareignina. Að setja eitthvað í stjórnarskrá sem engu breytir frá núgildandi lögum, hvern er verið að blekkja?
Af hverju er ekki unnið áfram með tillögur auðlindanefndarinnar frá árinu 2000? Ég gat um það sérstaklega að árið 2000 hafi auðlindanefndin gert sér grein fyrir því að 1. gr. fiskveiðistjórnarlaganna tryggði ekki virka þjóðareign. Það þyrfti að gera þetta almennilega. Það þyrfti að breyta lögum. Það þyrfti að setja inn í fiskveiðistjórnarlögin tímabundna samninga. Af hverju á sjávarútvegurinn einn auðlindagreina að vera án tímabundinna samninga þegar nýta á sameiginlega auðlind þjóðarinnar? Af hverju? Hvers konar sérhagsmunagæsla er þetta? Við erum að tala um risastór prinsippatriði. Vekur það ekki hv. þingmenn til umhugsunar um hvort þingið þurfi einmitt — og ég vil hvetja hv. þingmann til að nýta sér rétt sinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að fara mjög vel yfir nákvæmlega þennan þátt (Forseti hringir.) og hverju það breyti að setja tímabundna samninga (Forseti hringir.) inn í stjórnarskrá.