stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Forseti. Við erum að tala um risastórt mál. Ég var að vona að við gætum hafið okkur upp yfir afskaplega þreyttar hnútur í dægurpólitíkinni. Sérhagsmunagæsla, það að forsætisráðherra leggi þetta fram er tjón sem mun lifa með næstu kynslóðum, skrifaði ég eftir hv. þingmanni áðan. Já, ég mun fjalla vel um málið í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég mun spyrja alla lögspekinga sem að því koma hvort lagaákvæði og stjórnarskrárákvæði séu jafn gild, hvort eitthvað sem stendur í lögum sem breyta má með einföldum meiri hluta Alþingis sé það sama og það sem stendur í stjórnarskrá sem þarf að fara í gegnum það ferli sem þarf til að breyta stjórnarskrá og hvort sá skilningur hv. þingmanns sé réttur, sem kom fram í máli hennar, að allir lögspekingar segðu að þetta breytti engu. Ég leyfi mér að efast um hann, forseti.