stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegi forseti. Lagastofnun Háskóla Íslands segir að þetta breyti engu. Þetta breytir engu, þetta staðfestir bara þann rétt og verið er að flytja inn þann skilning sem er á 1. gr. fiskveiðistjórnarlaganna. Þetta breytir engu. Ekki er verið að fara í aðrar breytingar á lögum, eins og auðlindanefndin lagði til á sínum tíma, til að tryggja þjóðinni rétt sinn. Ekki er verið að gera það. Ég reyndi allt þetta tímabil og það hvernig ég vann lýsti sér m.a. í því að ég var reiðubúin til að vera á þremur málum með forsætisráðherra og formanni VG. Ég var eini formaðurinn sem lýsti því yfir. Er það merki um ómálefnalega nálgun? Eftir á, væntanlega. Fyrirgefðu hæstv. samgönguráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, ég var eini formaðurinn í stjórnarandstöðu sem lýsti því yfir. Er það merki um ómálefnalega nálgun? En ég spyrni við fótum þegar verið er að ógna rétti þjóðarinnar til að hafa raunverulegt forræði yfir sínum eigin auðlindum. Ég óttast að verið sé að gera það með þessum tillögum.