stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Forseti. Nú er þjóðin stjórnarskrárgjafinn og 2012 var kosið um hvort ætti að leggja grundvöll að nýrri stjórnarskrá með frumvarpi sem þar lá á bak við. Þar var í texta fullt gjald til hóflegs tíma í senn. Í breytingartillögu hv. þingmanns er talað um eðlilegt endurgjald fyrir tímabundnar heimildir. En það sem bætist við, bæði í breytingartillögu hv. þingmanns og í frumvarpi hæstv. forsætisráðherra, eru orðin „í ábataskyni“ sem mér finnst mjög áhugavert. Það er mjög málefnaleg gagnrýni á fulla gjaldið. Það er verið að reyna að taka til allra auðlinda, sólarorkunnar, loftsins eða hvers sem er. Við ætlum að reyna að útvíkka þetta eins og eðlilegt gjald og reyna að haga þessu eftir behag, — afsakið orðbragðið, herra forseti — geta stillt það inn og aðlagað okkur að aðstæðum vegna mismunandi auðlinda.
En þegar við bætum við orðunum „í ábataskyni“ hver eru þá rökin fyrir því að gera þennan greinarmun? Ef nýting er í ábataskyni hljótum við að sjálfsögðu að vilja fullt gjald með tímabundnum heimildum fyrir þær. Allar hinar geta verið undir þessum venjulegu forsendum um nýtingu og samfélagslega notkun og hvað sem það er. En um leið og stjórnvöld ákveða að nýting sé í ábataskyni ættu þau að sjálfsögðu að vilja fá fullt gjald fyrir hana til takmarkaðs tíma.