151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[20:36]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er kannski aldrei hyggilegt þegar þingmenn byrja að semja fyrst við sjálfa sig og nálgast einhverja málamiðlun. Breytingartillaga mín er svolítið til þess að reyna að ná ákveðinni sátt við tillögu hæstv. ráðherra og formanns Vinstri grænna. Ég vann breytingartillöguna út frá því. Hvað þýðir það varðandi eðlilegt gjald eða fullt gjald eða þá leið sem er farin hjá formanni VG? Á endanum er það alltaf þingið sem ákveður þetta. Það er þingsins að ákveða. Það er alveg eins og með það sem ég er að tala um og er lykilatriði í þessu, að við þurfum að tímabinda samninga og segja í stjórnarskránni að við þurfum tímabundna samninga. Það er síðan löggjafans að ákveða til hve langs tíma samningarnir eiga að vera gerðir. Þeir getað verið til skemmri tíma eða lengri í sjávarútvegi, en til lengri tíma varðandi nýtingu annarra náttúruauðlinda; orku o.s.frv., eins og er í dag. Þegar við tölum um gjald í þessu tilviki er ekki verið að beina því að sjávarútveginum einum og sér heldur að það nái til allra auðlinda. Það er lykilatriði líka. Ég tel mikilvægt og það er mín hugsun og hefur alltaf verið í þessari nálgun að á endanum sé mjög erfitt að setja allt inn í stjórnarskrána. Það er einfaldlega löggjafans að meta það. Stjórnarskráin mælist hins vegar til þess að tekið verði gjald og sérstaklega þegar nýting er í ábataskyni.