151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[20:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skil alveg þessa nálgun hjá hv. þingmanni. Engu að síður er það svo að hvort sem stæði hér fullt gjald, eðlilegt gjald eða leið forsætisráðherra væri farin er það alltaf á endanum þingið sem ræður þessu. Varðandi ákvæðið sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 og er lagt fram núna, m.a. af Pírötum og Samfylkingunni, þá er miklu meira í öllu því ákvæði, eins og varðandi það að afnema alla veðsetningu heimilda. Ég held að það væri eitthvað sem myndi ógna fiskveiðistjórnarkerfinu, ekki síst hjá smábátakerfinu sem reiðir sig mikið á veðsetningu eins og stóra kerfið. Svo að ég komi aftur því hvort maður sé kannski búinn að semja við sjálfan sig áður en þetta er sett svona fram: Ég er að reyna að finna þá nálgun sem við getum náð sátt um og treystir um leið rétt þjóðarinnar en treystir ekki bara rétt útgerðarinnar eins og leið ríkisstjórnarflokkanna gerir í þessu máli.