stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegur forseti. Margt er grátt í þessu en hluti af vinnunni okkar hérna snýst um að búa til ákveðinn fyrirsjáanleika, að hlutirnir séu skýrir. Það var það sem ég reyndi að fjalla um í andsvari við hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Þegar stjórnvöld ákveða að nýta ákveðna auðlind í ábataskyni erum við búin að eyða þeim gráma sem verið er að tala um hérna. Þá er orðið mjög skýrt að við þá auðlind eiga þær takmarkanir, fullt gjald til hóflegs tíma í senn, sem grunnur var lagður að í frumvarpi stjórnlagaráðs, sem var samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Núna fjallaði hæstv. ráðherra dálítið um að það þyrfti að vera á móti byltingum og á móti tilraunastarfsemi og o.s.frv. En hægt er að gera þetta á löngum tíma. Það var byrjað á því árið 2009, fyrir 12 árum. Síðan eru fjögur kjörtímabil, þau hafa verið mislöng að vísu. Búið er að leggja rosalega mikla vinnu í þetta nú þegar og það er ekkert óvænt í frumvarpi stjórnlagaráðs. 80% af núverandi stjórnarskrá eru í því frumvarpi. Það er mjög auðvelt að fara yfir þann lista og útskýra af hverju ýmis atriði eru ekki þar lengur. Nýju atriðin, mest af því sem er bætt við, eru atriði úr stjórnarskrám víðs vegar í heiminum, þar er engin tilraunastarfsemi í gangi. Enginn hefur talað um það á neinu stigi málsins að þetta mál eigi að meðhöndla af einhverri léttúð. Ég frábið mér að hæstv. ráðherra segist nálgast málið af varúð en allir aðrir nálgist það af léttúð. Það er ekki þannig. Við viljum gera þetta vel. (Forseti hringir.) En ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann myndi vilja fara með þennan skýra mun á auðlind sem notuð er í ábataskyni (Forseti hringir.) sem samið væri um nýtingu á til hóflegs tíma með fullu gjaldi, og auðlind sem ekki er notuð í ábataskyni.