stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegur forseti. Áður en ég svara þeirri spurningu er nauðsynlegt að bregðast aðeins við því sem hv. þingmaður sagði, um að hér væri búið að vera að vinna að stjórnarskrárbreytingum síðan 2009 og liðin væru 12 ár. Og hvað var það sem ég sagði í ræðu minni? Ég sagði að það væri skynsamlegt að stíga smærri skref og klára þau. En flokkur hv. þingmanns hefur sagt: Það kemur ekki til greina að breyta neinu nema allt verði undir og byggt á tillögum stjórnlagaráðs. Flokkur hv. þingmanns hefur í grundvallaratriðum sagt á síðustu árum, og reyndar fleiri flokkar, Samfylkingin líka: Ef ekki er allt undir og byggt á tillögum stjórnlagaráðs þá kemur ekki til greina að samþykkja nokkurn skapaðan hlut. Og eru það þá þeir flokkar sem vilja fara varfærnislega?
Nú ætla ég aftur að vitna í rökræðukönnunina, hóp fólks sem kom „fri“ — af fúsum og frjálsum vilja til að — [Hlátur í þingsal.] hér talar samstarfsráðherra Norðurlanda og er greinilega uppfullur af einhverjum skandinavískum hugsunum og biðst afsökunar á því. En það er staðreynd að það eru ekki bara þeir sem hafa viljað fara varlega sem hafa valdið því að lítið hefur breyst. Það eru ekki síður þeir sem krefjast grundvallarbreytinga, og að einungis sé farin þeirra leið, sem hafa komið í veg fyrir breytingar. Því ætla ég að varpa til hv. þingmanns.
Varðandi spurningu hv. þingmanns þá er það einfaldlega þannig að þó svo að sagt sé að hér eigi hlutir ekki að vera með félagslegum hætti heldur í ábataskyni, þá gæti t.d. fundist ný auðlind og löggjafinn segðist á næstu 10–20 árum ætla að gefa þeim tækifæri sem væru að reyna að nýta sér auðlindina og fjárfesta og segðist ætla að vera með gjaldtöku í samræmi við það (Forseti hringir.) og þá væri það ekki fullt gjald. Heimurinn er ekki svartur eða hvítur. Hann er meira og minna grár.