stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegur forseti. Það er mjög merkilegt að verið sé að reyna að kenna flokkum sem vilja fara eftir niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu um einhvern tafaleik í þessu, mér finnst það bara frekar kjánalegt, því að við leitum væntanlega eftir leiðbeiningu um það hvernig við störfum frá þjóðinni og þegar niðurstaða kemur úr þjóðaratkvæðagreiðslu, vinsamlegast leggið fram heildarendurskoðun á stjórnarskránni, eigum við ekki að gera það? Eigum við að gera eitthvað annað? Ég skil ekki hvað hæstv. ráðherra er að reyna að fara með þessu.
Mig langar líka til að minnast á öll þessi kommúnistalönd og lönd með stjórn langt til hægri sem hafa farið einhverja uppboðsleið. Það voru Íslendingar sem mæltu með því t.d. í Namibíu að þar ætti að bjóða upp kvóta. Namibíumenn gerðu það að vísu ekki, þeir fóru allt aðra, miklu verri leið, en að grunni til fóru þeir núverandi íslensku leiðina, með örlítið meiri spillingu á milli (Forseti hringir.) en Íslendingar mæltu með að Namibíumenn færu ekki þá leið sem Íslendingar fóru með kvótann heldur færu uppboðsleið.