stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ræðu hans og ekki bara honum heldur vil ég líka þakka okkur öllum sem vorum dugleg og flott í þessum hópi. Ég sem hef ekki mikla þingreynslu og var greinilega rennblaut á bak við eyrun hafði framan af fulla trú á því að við værum að meina það sem við vorum að gera en fljótlega beygðist krókurinn í aðra átt.
Hæstv. ráðherra talar um hinn mikla skýrleika sem fram kemur í b-lið þessarar nýju greinar, sem verður 80. gr. Hann talar ítrekað um að auðlindir náttúru Íslands tilheyri íslensku þjóðinni. Þetta er skýrt. Ég skal viðurkenna það. Þetta er frábært. En hvaða afleiðingar hefur það? Þegar og ef við tryggjum vonandi þetta nýja ákvæði sem er tímamótaákvæði fyrir okkur — vegna þess að sannarlega er mjög margt gott sem er sett hér fram og ég mun fara frekar yfir það í ræðu minni — telur þá hv. ráðherra að það muni ekki hreinlega gilda afturvirkt miðað við þá stöðu sem t.d. er uppi núna í sambandi við auðlindaákvæðið sem er sett fram í fiskveiðistjórnarkerfinu í almennum lögum? Eða mun þetta ekki hafa nein áhrif á þá sem hafa verið með sjávarauðlindina í fanginu í áratugi og hafa nýtt hana eins og þeir eigi hana, hafa selt hana og leigt hana, sem ber öll einkenni 72. gr. stjórnarskrárinnar um eignarrétt? Telur hæstv. ráðherra að þetta sé það skýrt og það klárt og frábært ákvæði að það muni jafnvel strika út þá meginreglu að bannað sé að vera með afturvirka löggjöf?