151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[21:24]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ef ég skildi spurningu hv. þingmanns rétt var hún um það hvort hægt væri að strika út 1. gr. fiskveiðistjórnarlöggjafarinnar. (IngS: Nei.) Þá hef ég misskilið hv. þingmann. En að öðru leyti ætla ég að segja að það er engin spurning í mínum huga að þetta ákvæði mun styðja mjög vel við ákvæðið í fiskveiðistjórnarlögunum. Ég ætla líka að segja að ef við ætlum enn og aftur að einblína bara á fiskveiðiauðlindina þá viðurkenna langflestir ef ekki næstum allir það í dag að það séu tímabundin réttindi sem hægt sé að taka af með tímabundnum samningum. Ég held að næstum allir viðurkenni að svo sé. Dómar hafa fallið um það. Menn hafa velt því fyrir sér í háskólasamfélaginu og hjá lærðum lögfræðingum, sem ég þykist ekki vera, að það sé þá spurningin um tímalengdina og aðferðafræðina. Ég ætla að fullyrða að þetta ákvæði muni styrkja þá stöðu sem ég held að við hv. þingmaður séum sammála um að þjóðin og við eigum að vera í varðandi auðlindir. En svo vil ég bara segja: Það eru svo margar auðlindir. Nú er ég fjarskiptaráðherra og bara úthlutun fjarskiptatíðna er auðlind. Þeim er úthlutað tímabundið. Það getur verið svo margt sem kemur upp. Ég heyrði hæstv. forsætisráðherra minnast hér á umframkoltvísýring. Endar hann á því að verða auðlind vegna þess að það verður samkeppni um að koma honum ofan í jörðina eða eyða honum? Það er svo margt sem við getum ekki skilgreint sem er auðlind (Forseti hringir.) sem á að heyra undir þetta almenna stjórnarskrárákvæði.