151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[21:59]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það hlaut að liggja í því einhver misskilningur og ég hugsa að hann sé ekki síður af minni hálfu, hv. þingmaður. Ég er svo ánægður með hvernig horft er á þessi mál í þessari tillögu. Hér er horft á auðlindir í náttúru Íslands, að þær tilheyri þjóðinni. Hér er ekki verið að horfa á eina auðlind heldur allar. Þær skal nýta á sjálfbæran hátt til hagsbóta landsmönnum öllum. Þarna finnst mér vera býsna skýrt að orði kveðið og gríðarlega mikilvægt að draga fram að nýting skuli vera á sjálfbæran hátt. Ég var t.d. að vinna í nefnd sem var að móta Íslandi orkustefnu, þar er nú aldeilis verið að vinna með auðlindir. Þar þurftum við akkúrat að tala okkur inn á það að gríðarlega mikilvægt væri að þær yrðu nýttar á sjálfbæran hátt. Það hefði ekki verið ónýtt í þeirri vinnu að hafa stjórnarskrárákvæði sem tryggði að það þyrfti alltaf að vera þannig og mér finnst gott að við getum tekið höndum saman akkúrat um þetta.

Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að fiskurinn í sjónum er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein og auðlind. Við getum ekki lokað augunum fyrir því að umræðan hefur snúist mikið um akkúrat þá atvinnugrein. Ég er hins vegar á því að allt of mikið, eða eigum við að segja allt of lítið, hafi það verið þannig að fólk líti út fyrir þá atvinnuvegi af því að ef horft er á mikilvægi út frá krónum og aurum, sem er náttúrlega ekki eini mælikvarðinn, þá er býsna mikið af öðrum auðlindum sem við ættum að veita jafn mikinn ef ekki meiri áhuga og athygli og sjávarútvegsauðlindinni. Um þetta þarf allt að hnýta tryggum og traustum hnútum þannig að auðlindir séu ævarandi eign þjóðarinnar og nýttar á sjálfbæran hátt. Það er það sem er gert svo vel í frumvarpinu.