151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

hækkun taxta í sjúkraþjálfun.

[13:03]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna sem er eðlilegt að komi fram á þessum tímapunkti. Heilbrigðisþjónusta, líkt og sú sem sjúkraþjálfarar veita, er veitt á grundvelli samninga og viðkomandi fá endurgreiðslur á grundvelli þeirra samninga. Staðan hefur verið þannig núna að samningar liggi ekki fyrir milli sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands. Samningurinn féll úr gildi fyrir réttu ári og samningsleysi, sem hefur staðið yfir núna í heilt ár, er auðvitað bara mjög erfið og alvarleg staða. Mér er sagt núna að haldnir séu fundir einu sinni í viku milli Sjúkratrygginga Íslands, sem hefur það verkefni að semja um heilbrigðisþjónustu, og sjúkraþjálfara og að samtalið sé í gangi. Ég legg mjög mikla áherslu á að samningar náist um þessa þjónustu vegna þess, eins og margoft hefur komið fram í skoðanaskiptum milli okkar hér, mín og hv. þingmanns, að við erum sammála um mikilvægi þjónustu sjúkraþjálfara. Ég hef raunar lagt áherslu á að sjúkraþjálfarar væru líka hluti af starfsliði heilsugæslunnar þar sem hægt væri að bjóða upp á enn þá ríkari þverfaglega heilbrigðisþjónustu í framlínunni. Oft er það nú svo að sjúkraþjálfarar geta gefið manni betri ráð um stoðkerfisvanda heldur en læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður.

Samningaviðræðurnar hafa ekki enn skilað árangri. Ég vonast auðvitað til þess að samningar náist sem fyrst. Samkvæmt upplýsingum sem ég er með þá áttu Sjúkratryggingar fund með fulltrúum stofueiganda fyrir áramót og ég vonast til þess að við sjáum fljótlega einhver merki um að þessi mál séu að hreyfast.