hækkun taxta í sjúkraþjálfun.
Virðulegur forseti. Það er nefnilega nákvæmlega það sem stendur til að gera, að semja. Ég er sammála hv. þingmanni um að það er ekki æskileg staða að samningar séu ekki fyrir hendi. Það er vert í því sambandi að benda á og halda því til haga að reglugerðin sem hér hefur verið til umræðu gildir bara um þjónustu þeirra sem starfa utan samninga. Það er í höndum heilbrigðisyfirvalda á hverjum tíma að skilgreina hvaða þjónustu við viljum kaupa. Það er kveðið á um það í lögum um sjúkratryggingar að í samningum um heilbrigðisþjónustu séu kröfur til veitenda þjónustunnar, m.a. um hæfni, sem eru þá forsendur þess að endurgreiðsla geti farið fram. Þannig að allt það sem gert hefur verið í þessu efni er að mínu mati byggt á lögum um sjúkratryggingar, en ég tek undir orð hv. þingmanns um mikilvægi þess að ná samningum hið fyrsta.