meðhöndlun sorps.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Ég vil auðvitað fagna því að ráðherra hafi látið vinna skýrslu sem heitir Stefna í meðhöndlun úrgangs. Drög að þeirri stefnu voru sett í umsagnarferli á vegum ráðuneytisins í átt að hringrásarhagkerfi. Ég vil einnig benda hæstv. ráðherra á að þar eru lögð drög að 24 aðgerðum á vegum stjórnvalda í úrgangsmálum en þar er ekki að finna nein áform um að reisa sorpbrennslustöð hér á landi. Hæstv. ráðherra talar um að til séu fleiri leiðir. Ég get tekið undir það, það hefur einnig verið rannsakað að hægt er að endurnýta úrgang og auðvitað verðum við að stefna að því. En í dag erum við að urða 200.000 tonn, og yfir það, og flytja eitthvað út. Og þó að við endurnýtum og endurvinnum töluverðan hluta þarf alltaf að losna við eitthvað. Niðurstöður þessarar skýrslu eru þær að það eru u.þ.b. 100.000 tonn. (Forseti hringir.) Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera í þeim málum? Og tíminn líður, Álfsnes er að loka. Er ekki kominn tími til að fara að undirbúa byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar?