151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

meðhöndlun sorps.

[13:14]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil benda hv. þingmanni á að endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs er um 30% á Íslandi, en á að vera 50%. Það er viðfangsefnið. Við urðum of mikið, það er hárrétt hjá hv. þingmanni. En að halda að sorpbrennsla sé eina lausnin í þessu sambandi segir mér bara að þingmaðurinn einblínir of mikið á eina ákveðna lausn. Við verðum að auka endurnotkun á hlutum. Við eigum að nota þá betur. Við eigum að nota minna og við eigum að endurvinna eins mikið og við getum. Að því sögðu er í skoðun á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og ráðuneytisins og fleiri aðila með hvaða hætti sorpbrennslumálunum verði best fyrir komið á Íslandi vegna þess að það kallar á ákvörðun um það hvort við eigum að ráðast í eina stóra stöð, sem næst uppruna úrgangsins, eða fleiri minni sem yrðu þá dreifðar út um allt land og sú vinna er í gangi.