áhrif Covid-19 á stöðu jafnréttismála.
Virðulegi forseti. Bein og óbein áhrif Covid-19 á stöðu jafnréttismála er áhyggjuefni því að það er jú þekkt að efnahagsþrengingar eru til þess fallnar að auka á launamun kynjanna og fyrir því þarf að vera vakandi. Ísland trónir, eins og við þekkjum, efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti og hefur gert í rúman áratug. En góður árangur að þessu leyti getur auðvitað leitt til þess að einhverjir trúi því að við séum komin í höfn. Við vitum hins vegar að launamunur kynjanna er viðvarandi vandamál, útskýrður sem óútskýrður. Störf kvennastétta eru ekki metin og hafa ekki verið metin að verðleikum og öll finnum við fyrir afleiðingum þess.
Sá árangur sem náðst hefur hér á landi náðist vitaskuld ekki bara með tímanum heldur með markvissri baráttu og lagasetningu sem við getum öll verið stolt af. En ég verð að viðurkenna að ég varð undrandi þegar ég sá að eitt fyrsta skref félagsmálaráðherra þessarar ríkisstjórnar var að fresta gildistöku laga um jafnlaunavottun, sem verður þá ekki innleidd að fullu fyrr en í lok árs 2022. Við sjáum jafnframt mælingar sem vekja upp ákveðnar spurningar. Árið 2008 var launamunur kynjanna heil 20%. Síðan höfum við horft upp á jákvæðan en hægfara árangur allt fram til ársins 2018 þegar launamunurinn fór aðeins upp aftur, úr 13,6% í 14%. Þar var sem sagt eitthvað að gerast áður en við fórum inn í þetta erfiða efnahagsástand. Ekki mikil hækkun vitaskuld, en talan 14% er hins vegar óhugguleg. Þannig að óleiðréttur launamunur kynjanna hefur nú þegar aðeins aukist samkvæmt mælingum.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Samkvæmt þingsályktunartillögu árið 2018 var gert ráð fyrir því að ráðist yrði í greiningu á launakjörum ólíkra starfsstétta m.a. til að draga fram kynbundinn launamun til að tryggja jafnræði við launasetningu ólíkra starfsstétta. Fjármálaráðherra var falið verkefnið. Hvað líður þeirri vinnu? Liggja fyrir einhverjar sérstakar aðgerðir núna af hálfu stjórnvalda í kjölfar þeirrar vinnu til þess að vinna í þágu þessa markmiðs?