áhrif Covid-19 á stöðu jafnréttismála.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp málefni jafnréttis og Covid í þessum fyrirspurnatíma. Eitt er launamunurinn, og ég ætla að koma aðeins að honum á eftir, en annað er kynbundið ofbeldi, sem við höfum séð merki um að er að vaxa vegna heimsfaraldurs. Ég vil nefna það hér, af því að hv. þingmaður er að spyrja um aðgerðir til að tryggja jafnrétti, sem er mjög mikilvægt á tímum heimsfaraldurs, að Alþingi samþykkti fyrstu forvarnaáætlunina gegn kynbundnu ofbeldi, kynbundnu áreiti, kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri áreitni. Það hefur væntanlega verið gert árið 2019. Hún er fullfjármögnuð og er að fara af stað núna. Ég hef miklar væntingar til þess að markvissar aðgerðir í þeim málaflokki — fyrir utan þau lagafrumvörp sem hafa verið að koma inn og eru inni og byggja á starfi starfshóps um heildstæðar úrbætur í þessum málaflokki, við ræddum kynferðislega friðhelgi hér í gær — muni leiða til marktækra úrbóta á þessu sviði, sem ég tel að geti í senn kallast orsök og afleiðing kynjamisréttis í samfélaginu og er einmitt ekki tekið með í mælingu Alþjóðaefnahagsráðsins á jafnréttismálum.
Ég get tekið undir með hv. þingmanni um launamuninn og jafnlaunavottunina. Við höfum lagt verulega mikið á okkur við að ýta við bæði fyrirtækjum og stofnunum að uppfylla markmið jafnlaunavottunar. Ég myndi segja að þrátt fyrir Covid hafi það gengið ágætlega. Við höfum lagt áherslu á að birta upplýsingar. Þannig að það verkefni er í fullum gangi. Hins vegar er óútskýrður launamunur sannarlega áhyggjuefni. Þá vil ég nefna það að í tengslum við kjarasamninga ríkisins og BSRB var ákveðið að leggja af stað í sérstaka vinnu um endurmat á störfum kvenna. Sú vinna er á vegum forsætisráðuneytis, ekki fjármálaráðuneytis. Sá starfshópur er að störfum og mun skila niðurstöðum núna í sumar og ég held að þar gætum við fundið að einhverju leyti orsakir þessa óútskýrða launamunar, (Forseti hringir.) sem snýst m.a. um kerfisbundinn mun á því hvernig við metum karlastörf og hvernig við metum kvennastörf.