áhrif Covid-19 á stöðu jafnréttismála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svörin. Ég er henni einlæglega sammála um að kynbundið ofbeldi sé ein helsta meinsemd samfélags okkar og bæði rót og afleiðing kynjajafnréttis. En ég var hins vegar að horfa hér sérstaklega á annað viðvarandi vandamál sem er ekki síður alvarlegt; að við séum árið 2021 enn þá að glíma við þennan veruleika. Mér fannst aðeins vanta upp á að fá svar af því að þessi þingsályktunartillaga er frá árinu 2018, hún var samþykkt það ár, og þar var gert ráð fyrir að farið yrði í þessa greiningu.
Í fyrsta lagi: Hvers vegna er það svo að verið sé að vinna að þessu verkefni í forsætisráðuneytinu annars vegar og fjármálaráðuneytisins hins vegar? Ég leyfi mér að spyrja að því sem nýr þingmaður, ég þekki ekki til þess. Nú er nokkuð um liðið síðan fjármálaráðherra fékk þetta verkefni í hendur með samþykkt þingsins. Þingmenn Viðreisnar hafa spurt nokkuð reglulega um þetta án svara. Ég varpa fram sömu spurningunni aftur í ljósi þess að kreppa er og hefur alltaf í sögulegu tilliti verið til þess fallin að þyngja jafnréttisbaráttuna. Hvað líður þessari vinnu og eru einhverjar sérstakar aðgerðir ríkisstjórnarinnar á döfinni núna hvað þetta varðar?