151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

áhrif Covid-19 á stöðu jafnréttismála.

[13:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Já, nú er það svo að ég svaraði því hvað forsætisráðuneytið er að gera og ég held að ég verði hreinlega að vísa á hæstv. fjármálaráðherra hvað varðar þá vinnu sem stendur yfir í ráðuneyti hans því að ég er vissulega ekki með yfirsýn yfir allt það sem er að gerast í öllum ráðuneytum.

Hv. þingmaður spyr hvað verið sé að gera. Í fyrsta lagi stendur alltaf yfir vinna á vegum forsætisráðuneytisins hvað það varðar að kyngreina allar aðgerðir sem við ráðumst í og ég er sammála hv. þingmanni um það að við þurfum að hafa sérstakan vara á í ástandi eins og við erum í núna sem við þekkjum sögulega að getur leitt til aukins ójöfnuðar og aukins misréttis. Vinnan sem stendur yfir í forsætisráðuneytinu, og henni mun ljúka í sumar, snýst hins vegar um endurmat á störfum kvenna þar sem horft verður á orsakir kynskipts vinnumarkaðar sem er sannanlega mun kynskiptari hér á landi en mjög víða annars staðar og síðan á starfsmatið á karlastörfum og kvennastörfum. (Forseti hringir.) Og eins og ég nefndi áðan var þetta í tengslum við kjarasamninga þar sem BSRB átti frumkvæði að þessu. Þarna koma saman aðilar vinnumarkaðarins og ólíkra ráðuneyta (Forseti hringir.) og ég hef miklar væntingar til starfs þessa hóps því að hann mun að einhverju leyti ráðast að rótum þessa vanda.