samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.
Herra forseti. Það er óhætt að fullyrða að heimsbyggðin hafi andað léttar eftir að niðurstöður forsetakosninga í Bandaríkjunum urðu þær að Joe Biden var kjörinn forseti landsins með sjö milljóna atkvæða mun og vann þar með sigur á fráfarandi forseta, Donald Trump. Valdatíð Trumps einkenndist af ofstopa, valdníðslu og ósannindum, kynþáttahyggju og kvenfyrirlitningu. Trump dró Bandaríkin út úr alþjóðastofnunum, lokaði á för íslamstrúar fólks til Bandaríkjanna, hafnaði niðurstöðum lýðræðislegra kosninga og hvatti stuðningsmenn sína nokkrum sinnum til ofbeldis sem byggði á kynþáttafordómum og hatursglæpum. Með orðum sínum og hegðun gaf Trump hægri öfgahópum, nýnasistum og þjóðernisöfgasinnum lögmæti og þar hafa þeir staðið beinir í baki síðustu fjögur ár og spúð hatri í allar áttir með stuðningi sjálfs forseta landsins sem stundaði popúlisma af verstu sort. Valdatíð hans lauk með hvatningu hans til stuðningsmanna sinna um að ráðast inn í sjálft þinghúsið. Trump brást bandarísku þjóðinni líka algerlega í heimsfaraldrinum með þeim afleiðingum að bandarískur almenningur hefur orðið hvað verst úti af öllum vestrænum þjóðum vegna kórónuveirunnar.
Það er sannarlega mikill léttir að nýr forseti skuli hafa tekið við völdum í Bandaríkjunum þann 20. janúar sl. og strax á fyrstu dögum valdatíðar Bidens er munurinn skýr. Á fyrsta degi sínum í embætti skipaði Biden þannig fyrir um að fella skyldi úr gildi ferðabann gagnvart löndum þar sem íslamstrú er ríkjandi, skipaði fyrir um að Bandaríkin yrðu aftur aðili að Parísarsamkomulaginu, dró til baka úrsögn Bandaríkjanna úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og skipaði fyrir um ótal aðgerðir til að bregðast við Covid-19. Hann hefur líka sýnt að hann leggur áherslu á mannréttindi minnihlutahópa í bandarísku samfélagi. Nú er því lag að skerpa á sambandi okkar Íslendinga við ný bandarísk stjórnvöld sem eru með allt aðra sýn en þau fyrri; leggja það niður fyrir okkur hvað það er sem við sem fullvalda sjálfstætt ríki viljum leggja áherslu á við ríkisstjórn Bidens forseta og í samskiptum okkar við Bandaríkin með nýjum forseta með allt aðrar áherslur en sá fyrri.
Samband Íslands og Bandaríkjanna er sérstakt og hefur verið náið í 80 ár en það hefur líka verið umdeilt í þessi 80 ár. Samskipti okkar við Bandaríkin skipta okkur gríðarlega miklu máli en það skiptir okkur líka máli á hvaða grunni þau eru reist og á hvaða forsendum, hvort þau fara fram á grunni sameiginlegra gilda, virðingar fyrir lýðræði, lögum og reglum og virðingu fyrir mannréttindum, og ekki síst gagnkvæmri virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti beggja þjóða. Áhugi Bandaríkjastjórnar undir forystu Trumps á norðurslóðum var augljós en sá áhugi var drifinn áfram af karllægum yfirgangi og gamaldags valdabrölti frekar en einlægum áhuga á því að tryggja góð og friðsamleg samskipti við aðrar þjóðir á norðurslóðum á tímum mikilla loftslagsbreytinga sem verður hvað mest vart við á norðurskautinu og munu hafa miklar breytingar í för með sér.
Dæmi um þessa gamaldags yfirgangssömu nálgun Trump-stjórnarinnar á norðurslóðum er bókun fulltrúa hans í Norðurskautsráðinu gegn frekari samhentari aðgerðum og samvinnu til að sporna við loftslagsbreytingum. Þessu þarf að breyta til að meira jafnræði ríki milli þjóðanna við norðurskaut og þar þurfum við Íslendingar að eiga frumkvæði og koma fram með skýra sýn er byggist á loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra á umhverfi, náttúru og samgöngur.
Hvernig verður svo samstarfi Íslands og Bandaríkjanna háttað þegar kemur að öryggis- og varnarmálum og hverjar verða breytingarnar á því samstarfi? Það er ljóst að það verða áherslubreytingar í öryggis- og varnarmálum milli Íslands og Bandaríkjanna og nauðsynlegt að leggja áherslu á nýja aðkallandi þætti er varða öryggissamstarf á sviði netógna og loftslagsbreytinga. Viðskiptasamband okkar við Bandaríkin er ákaflega mikilvægt enda hefur hæstv. utanríkisráðherra sýnt það með áherslum sínum á viðskiptasamráð við Bandaríkin, sem er mjög gott og þarft og eitthvað sem við þurfum áfram að halda vel á lofti við nýja ríkisstjórn vestra. Það þarf líka að hugsa það viðskiptasamráð upp á nýtt með nýjum forseta.
Herra forseti. Þegar hæstv. utanríkisráðherra hefur talað um fríverslunarsamning við Bandaríkin hefur mér fundist það tal vera of laust í reipunum og óskýrar hugmyndir þar að baki. Ég minni á að allar hugmyndir og vinnu við einhvers konar fríverslunarsamning við Bandaríkin þarf að ræða í þaula í þinginu og setja í samhengi við aðra fríverslunarsamninga sem við vinnum á vettvangi EFTA og viðskiptasambönd okkar í gegnum ESB og ekki síst hugmyndir og áætlanir um tolla eða annað því um líkt.
Það er líka staðreynd að Biden hefur lítið tjáð sig um áherslur ríkisstjórnar sinnar í alþjóðaviðskiptum þó svo að talið sé líklegt að Biden muni á næstu vikum móta stefnu með áherslu á enduruppbyggingu alþjóðaviðskiptakerfisins. Fyrstu fréttir um þær áherslur gefa til kynna að þær muni hverfast um loftslagsmál og félagsleg réttindi. Það eru sannarlega jákvæð og góð tíðindi fyrir Ísland og getur boðið upp á mikla möguleika í viðskiptasamningum eða -samráði milli ríkjanna tveggja og jafnvel lagt grunn að einhvers konar loftslagssamningi milli landanna tveggja sem yrði ótrúlega spennandi verkefni og sannarlega mikilvægt lóð á vogarskálarnar í (Forseti hringir.) baráttunni gegn loftslagsvánni, sem er þungamiðjan í utanríkisstefnu Bidens.
Herra forseti. Að lokum legg ég til að Ísland geri sérstakan loftslagssamning við Bandaríkin. Ég hlakka til að heyra hvaða áherslur hæstv. utanríkisráðherra kemur inn á í ræðu sinni hér.