151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.

[13:44]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst þakka hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur fyrir að hafa haft frumkvæði að þessari mikilvægu umræðu. Ég er hlynntur því að fram fari meiri og betri umræða í þingsölum Alþingis um utanríkismál. Þá er ekki síst áríðandi að fjalla um samskipti okkar og samband við nána bandamenn og vinaríki líkt og Bandaríkin. Við í utanríkisráðuneytinu höfum, eins og hv. þingmaður, fylgst með atburðum liðinna vikna og mánaða og vissulega vöktu þeir atburðir sem áttu sér stað í þinghúsinu í Washington 6. janúar síðastliðinn áhyggjur og raunar sterk viðbrögð heima og heiman. Nú eru stjórnarskipti hins vegar afstaðin og fóru þau fram með friðsamlegum hætti og Biden og hans fólk hefur tekið til óspilltra málanna við að koma stefnumálum sínum í framkvæmd.

Hvað mig varðar þá staldra ég ekki síst við þá staðreynd að undanfarnar vikur hafa sýnt hversu sterk lýðræðishefðin er í Bandaríkjunum þegar til kastanna kemur. Það sem við okkur blasir er að lýðræðisstofnanir og stjórnskipulag stóðust þau álagspróf sem segja má að framganga fyrrverandi forseta hafi leyst úr læðingi. Þessu fagna auðvitað allir sannir vinir Bandaríkjanna, ekki síst þessi eiginleiki bandarísks samfélags sem gerir það að verkum að við Íslendingar höfum litið á Bandaríkin sem vinaþjóð okkar og bandamenn á vettvangi alþjóða- og öryggismála.

Varðandi samskipti íslenskra stjórnvalda við ríkisstjórn nýs forseta Bandaríkjanna, Joes Bidens, get ég upplýst að undanfarnar vikur hefur verið unnið að því í utanríkisráðuneytinu í góðu samstarfi við sendiráð Íslands í Washington að kortleggja hvernig best megi vinna að áframhaldandi góðum samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Tel ég mikilvægt í þeirri vinnu að nú þegar hefur farið fram samráð við utanríkismálanefnd Alþingis, eins og hv. þingmaður þekkir. Taka verður með í reikninginn að Biden-stjórnarinnar bíður afar krefjandi verkefni heima fyrir. Baráttan við Covid-farsóttina er einfaldlega langefst á dagskrá nýs forseta, þar með talið aðgerðir til að takast á við efnahagslegar afleiðingar faraldursins og bólusetningar landsmanna. Þó hefur strax mátt greina nýjan tón á sviði alþjóðasamvinnu. Á fyrsta degi sínum í embætti skipaði Biden þannig fyrir um að Bandaríkjamenn myndu aftur gerast aðilar að Parísarsamkomulaginu um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og forsetinn hefur dregið til baka úrsögn Bandaríkjanna úr Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, svo fátt eitt sé nefnt.

Við horfum til Bandaríkjanna sem öflugasta lýðræðisríkis heims og það er mikilvægt að Bandaríkin verði áfram í forystu á vettvangi alþjóðamála. Fyrir okkur og önnur lýðræðisríki skiptir verulegu máli að Bandaríkin séu virkir þátttakendur í fjölþjóðasamstarfi, ekki síst núna þegar grafið er undan ýmsum þeim réttindum og gildum sem við teljum svo mikilvæg. Gott samband Íslands og Bandaríkjanna grundvallast á þessum sameiginlegu gildum og hagsmunum og er ekki bundið því hver situr í forsetaembættinu þar hverju sinni eða hvaða flokkur ræður ríkjum. Milli landanna eru djúp menningartengsl og viðskiptatengslin skipta okkur afar miklu máli. Bandaríkin eru mikilvægasta útflutningsland okkar Íslendinga og nauðsynlegt verður að gæta að þeim hagsmunum hér eftir sem hingað til. Á síðustu fjórum árum hefur náðst góður árangur í þeim efnum og ég vænti þess að við getum áfram unnið að því að tryggja sem best skilyrði fyrir viðskipti milli landanna.

Hér ber sérstaklega að nefna efnahagssamráð sem sett var á laggirnar í kjölfar funda minna með þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og svonefnt Íslandsfrumvarp sem verður lagt fram í þinginu. Frumvarpið miðar að því að veita íslenskum ríkisborgurum sem stunda viðskipti og fjárfestingar í Bandaríkjunum auknar heimildir til að fá rýmri vegabréfsáritanir.

Öryggis- og varnarsamstarf ríkjanna, bæði tvíhliða og á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, er sameiginlegt hagsmunamál ríkjanna og er grundvallarstoð í þjóðaröryggisstefnu okkar Íslendinga. Bæði Ísland og Bandaríkin hafa á síðustu árum verið að fjárfesta í að uppfæra aðbúnað á Íslandi sem lítið hefur verið sinnt frá því veru varnarliðsins lauk á Íslandi fyrir 15 árum síðan. Kemur þessi fjárfesting einnig til vegna breytinga og horfa í heimsmálunum og má þar nefna innrás Rússa í Úkraínu.

Enn fremur má nefna samstarf á norðurslóðum sem aldrei hefur verið eins náið og undanfarin ár. Við merkjum mikinn áhuga vestra á norðurslóðamálefnum sem hafa almennt fengið stærri sess á alþjóðavettvangi á undanförnum misserum. Í ljósi áherslna Bidens forseta á loftslagsmál væntum við þess raunar að hér séu tækifæri til að víkka enn frekar út gott samstarfi þjóðanna sem grundvallast á sterkum viðskiptatengslum, samstarf á sviði öryggismála og af því að við deilum hugmyndum lýðræðis og frelsis. Íslenskir og bandarískir vísindamenn eru í góðu samstarfi varðandi rannsóknir á ýmsum sviðum, svo sem á sviði málefna norðurslóða, heilsu og orku. Slíkt samstarf er afar jákvætt og munu íslensk stjórnvöld áfram vinna að því að efla það.

Í stuttu máli þá vænti ég þess að samband okkar við nýja valdhafa í Washington verði gott. Í því sambandi get ég upplýst að vonir standa til að nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken, geti sótt ráðherrafund Norðurskautsráðsins sem haldinn verður hér á landi í maí, en þá lýkur tveggja ára formennskutíð Íslands í ráðinu. Allt er það auðvitað háð þróun Covid-heimsfaraldursins eins og allt sem við tökum okkur fyrir hendur, en við erum bjartsýn á að af fundinum geti orðið.(Forseti hringir.)

Í lokin vil ég ítreka þakkir mínar til þingmannsins og hlakka til að heyra innlegg annarra í umræðunni hér á eftir.