samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.
Herra forseti. Ég vil eins og aðrir þakka fyrir þessa umræðu. Það er mikilvægt að ræða þær breytingar sem eru að verða hjá einum af okkar helstu bandamönnum þegar við horfum á nýafstaðnar kosningar í Bandaríkjunum. Ég fagna því sem fram kemur í orðum hæstv. ráðherra, að ekki eigi að breyta um neina stefnu hvað varðar samskipti við Bandaríkin. Ríkisstjórnin lagði mikið upp úr góðu samstarfi við Trump-stjórnina og því er mikilvægt að það samstarf haldi áfram við nýja valdhafa í Bandaríkjunum. Við þurfum að efla þessi tengsl. Við þurfum að horfa á hvaða breytingar verða nú við þessar breytingar. Við þurfum að leita nýrra tækifæra. Við þurfum að skoða hvar við getum komið íslenskum áherslum á framfæri, sem við gátum ekki áður, með þessari nýju stjórn.
Það er eitt stórmerkilegt sem gerðist við þessar kosningar. Varaforseti Bandaríkjanna, Kamala Harris, er fyrsta konan sem gegnir slíku starfi og hún er afrískur Bandaríkjamaður og asískur Bandaríkjamaður. Þetta gefur okkur tækifæri til að ræða jafnréttismál við Bandaríkjamenn og við eigum ekki að láta deigan síga þar. Það er sérstakt tækifæri, herra forseti, til þess að láta á það reyna hvort Bandaríkjamenn vilji núna koma með okkur í þá vegferð að tala fyrir jafnréttismálum og stórefla jafnrétti allra eftir að þessi breyting er orðin. Það er ekki sjálfgefið. En þetta er þáttur sem við eigum að leggja áherslu á því að þarna er tækifæri, það verður fylgst með hvernig Kamölu Harris gengur í sínu embætti.
Ég vil líka nefna það að við þurfum að spyrja hvort það verði breyttar áherslur í varnarmálum. Megum við búast við því að ný stjórn breyti eitthvað áherslunni sem Trump-stjórnin virtist vera með á Ísland?
Síðan langar mig líka að velta því upp hvort ráðherrann viti hugsanlega til þess og hafi átt einhver samtöl varðandi breytingar á afstöðu bandarískra stjórnvalda til ferða til og frá landinu, þ.e. ferða Íslendinga.
Herra forseti. Að lokum langar mig að nefna að það er mikilvægt fyrir Ísland að leggja áherslu á það við okkar góðu bandamenn í Bandaríkjunum, Bretlandi, Grænlandi, og þá mögulega um leið í Danmörku, hvernig við getum eflt samstarfið á norðurslóðum og ekki síst í Norður-Atlantshafi.