151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.

[14:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir fór ágætlega yfir breytingarnar og tækifærin sem felast í stjórnarskiptunum í Bandaríkjunum og áhrif sem þau geta haft á utanríkisstefnu Bandaríkjanna og samskipti og samstarf, m.a. við Ísland. Ég ætla að leyfa mér að ræða afmarkaðan þátt sem hefur gleymst í umræðunni, óviljandi eða viljandi. Árið 2019 var undirrituð reglugerð um veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019–2023. Heimilt er að veiða 200 langreyðar og 200 hrefnur hér á landi á ári. Kannanir Íslandsstofu á viðskiptalegum hagsmunum þjóðarinnar í þessum efnum sýna að um helmingur neytenda í Norður-Ameríku segist ekki kaupa neinar afurðir frá þjóð sem stundar hvalveiðar. Öllum ætti því að vera ljóst að þessar veiðar okkar eru bæði umhverfislega og efnahagslega óskynsamlegar og skaðlegar fyrir ímynd og efnahag.

Ég veit að hvalveiðar eru á forræði sjávarútvegsráðherra en við þurfum að ræða þessar veiðar í víðu samhengi, líka út frá hagsmunum okkar í utanríkismálum. Milliríkjasamskipti og gríðarlegir viðskiptahagsmunir eru í húfi. Þótt ríkisstjórn Donalds Trumps hafi ekki haft miklar áhyggjur af hvalveiðum okkar eru miklar líkur á að það muni breytast í forsetatíð Joes Bidens. Hann var varaforseti 2014 þegar Obama kynnti mjög skýra stefnu Bandaríkjanna gagnvart hvalveiðum Íslendinga og annarra hvalveiðaþjóða. Það voru bein tilmæli frá Obama til embættismanna að forðast samskipti við Íslendinga á meðan á þeim stæði.

Utanríkisstefna Íslands hefur einkennst af því að vera fráhverf nánara sambandi við Evrópu með inngöngu í ESB yfir í tvíhliða samskipti og milliríkjasamskipti með verslun. Um það hef ég ýmislegt að segja en samband okkar við Bandaríkin er sérstaklega mikilvægt. Því vil ég spyrja: Hvernig lítur ráðherra á stöðuna? Er líklegt að Biden feti sömu braut og Obama og er ekki kominn tími til að við ræðum hvalveiðar, út frá hagsmunum okkar, við Bandaríkin?