151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.

[14:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu. Almennt ræðum við utanríkismál allt of lítið í þingsal. Traust og langvarandi vináttusamband Íslands og Bandaríkjanna, þjóðanna, okkar í millum, á rætur langt aftur til fyrstu daga lýðveldisins. Sveinn Björnsson fór í sína fyrstu opinberu heimsókn til Washington DC að hitta Franklin Delano Roosevelt, 32. forseta Bandaríkjanna, í ágúst 1944, nokkrum vikum eftir að við stofnuðum okkar lýðveldi. Fundur forsetanna fór fram 24. ágúst 1944. Þeir hittust í Hvíta húsinu og þetta var fyrsta opinbera heimsókn íslensks forseta. Þetta segir ansi mikið um samskipti þjóðanna í gegnum áratugina og hefur alltaf verið gott samband þarna á milli.

Varnarsamningurinn 1951 er undirstaða íslensku þjóðaröryggisstefnunnar og væntanlega einn okkar stærsti samningur ásamt NATO. Svo getum við nefnt Norðurlandasamstarfið, EFTA og EES, það er almennt undirstaða í okkar utanríkismálum. En varnarsamningurinn frá 1951 er gríðarlega mikilvægur þessari þjóð.

Þetta er allt of stuttur tími, en ég ætla að benda á eitt atriði. Á fundi stjórnarnefndar NATO-þingsins í fyrra var Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar í Bandaríkjunum, á febrúarfundi NATO-þingsins. Hún hafði verið að koma frá öryggisráðstefnu í München. Annað árið í röð fer 40–50 manna hópur bandarískra þingmanna og öldungadeildarþingmanna til Evrópu til að sýna raunverulega hvernig þeir styðja við NATO og þetta samstarf. Það er lykill og hornsteinn allra samskipta þar á milli.

Þetta er allt of stuttur tími, þetta er bara ekki hægt. Við verðum að ræða þessi mál miklu betur. Við þurfum að ræða stefnu stjórnmálaflokka á Íslandi er hvað varðar varnarsamninginn og NATO. Þá er kannski réttast að spyrja hv. þingmann, sem kemur með þessa frábæru hugmynd að umræðu um þessi mál: Hver er afstaða Samfylkingarinnar til varnarsamningsins og NATO í dag?