151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.

[14:18]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Aðeins áfram um málefnið. Bandaríkin eru stórveldi, um það efast enginn. Við þurfum að eiga við það eins góð samskipti og nokkur kostur er, það eru hagsmunir okkar og þeir eru margslungnir eins og margir ræðumenn hafa komið inn á. Má þar nefna norðurskautsmálin og umhverfismálin, sem eru náttúrlega mjög umfangsmikil í þessu samhengi, og síðan öryggis- og varnarmál. Við erum í félagsskap með Bandaríkjunum í NATO og ég held að það sé mjög mikilvægt að þátttaka Bandaríkjanna og samvinna okkar við þau um öryggis- og varnarmál af ýmsu tagi í víðtækri merkingu fari fyrst og fremst í gegnum samstarf okkar í NATO.

Síðan eru önnur stór mál sem eru viðskiptamálin og þar leyfir maður sér að binda vonir við að Bandaríkin muni í auknum mæli hverfa frá stefnu Trumps og meiri áherslu hans á að setja Bandaríkin ávallt í fyrsta sæti og snúa sér að tvíhliða samningum við ríki, í staðinn fyrir að sinna þeim með marghliða samningum. Spennandi verður að sjá hvernig Bandaríkjamenn munu haga sér innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og sérstaklega hvort þar verður breyting, hvort þeir muni taka að nýju þátt í því að lúta, eigum við að segja, úrskurðarvaldi WTO í viðskiptadeilum, sem þeir hafa ekki gert og reyndar var byrjað á því í stjórnartíð Obama. (Forseti hringir.) Það að hafa sterkt alþjóðlegt regluverk með góðri eftirfylgni er það sem við Íslendingar þurfum mest á að halda.