151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.

[14:24]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. framsögumanni og sömuleiðis öðrum hv. þingmönnum fyrir umræðuna hér, sem mér hefur fundist bæði góð og uppbyggileg. Ég hef reynt að beita mér fyrir því eins og ég get að alþjóðamál séu rædd á þessum vettvangi, tek undir að það er mikilvægt. En betur má ef duga skal.

Ég vildi hins vegar aðeins fá að fara yfir ákveðna þætti. Í fyrsta lagi fannst mér ákveðins misskilnings gæta hjá hv. þm. Birgi Þórarinssyni þegar hann talaði um, það mátti skilja það þannig, en kannski er ég að misskilja hv. þingmann, að Bandaríkin hefðu legið á okkur og beðið okkur um fríverslunarsamning. Það er ákveðinn misskilningur og reyndar er allt það sem við höfum fengið fram í samskiptum við Bandaríkin til komið vegna þess að við höfum verið að sækja um á það. Reyndar er það þannig almennt í okkar hagsmunagæslu, það er mjög sjaldgæft að við fáum símtöl þar sem við erum beðin um að einhver af þeim málum sem við leggjum áherslu á fari í gegn. Þetta er afrakstur þrotlausrar vinnu og það er auðvitað engin tilviljun að samstarfið hefur eflst jafn mikið og raun ber vitni á undanförnum árum. Það er mjög langur vegur frá. Það er út af áherslu og það er út af undirbúningi og það er út af vinnu.

Hér eru menn að tala um ýmsa þætti sem eru mjög áhugaverðir varðandi samstarf. Ég fór yfir hugsanlegt samstarf og aukið samstarf og menn spyrja sig hvort það sé möguleiki. Ég hvet fólk til að skoða tíst frá Harry Kamian, sem er staðgengill sendiherra, sem ég átti fund með nú í vikunni. Það eru ákveðin góð skilaboð, finnst mér, frá Bandaríkjamönnum að senda strax staðgengil sendiherra til Íslands. Fundurinn sem við áttum var mjög uppbyggilegur og góður og tístið er algerlega í samræmi við það. Þar er lögð áhersla á áframhaldandi dýpkun á samstarfi Íslands og Bandaríkjanna. Það er gott ef um það næst góð samstaða.

Um önnur mál ætla ég kannski ekki að fjalla sérstaklega, enda er tími minn búinn, en mér finnst það góð hugmynd þegar hv. þingmenn biðja um sérstaka umræðu við utanríkisráðherra.