umræður um utanríkismál.
Herra forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. Við erum hér að ræða utanríkismál og þau eru afar sjaldan rædd í þessum sal. Um er að ræða mjög mikilvægan málaflokk og hann þarf maður að ræða hér undir glymjandi bjöllu hæstv. forseta. Menn verða bara að átta sig á því að þetta er málaflokkur sem þarf miklu meiri tíma. Ég vil hvetja forseta þingsins til að fara yfir þau mál, að við getum haft góðan tíma til að ræða svo mikilvægan málaflokk og þurfum ekki að sitja undir þessum stanslausa bjölluhljómi frá hæstv. forseta sem er nú þekktur fyrir það að vera alltaf á bjöllunni ef maður fer eina sekúndu fram yfir tímann.
(Forseti (BN): Þetta voru aðfinnslur um fundarstjórn forseta.)